Með haglabyssu að hefna sín á Íslendingum 21. febrúar 2009 15:59
Tveir Danir sem fóru halloka fyrir Íslendingum í slagsmálum í bænum Haslev í Danmörku í gær fengu vin sinn til þess að mæta með afsagaða haglabyssu til þess að hefna harma sinna. Kráareigandinn, Frank, segir engum vopnum hafa verið beitt inn á kránni. Þeir fóru hinsvegar húsavillt. Þeir skutu á glugga á heimavist í skóla nokkrum þar sem þeir héldu að Íslendingarnir byggju. Innan dyra þar voru hinsvegar aðeins alsaklausir Pólverjar sem hringdu samstundis í lögregluna. Lögreglan kom og handtók byssumennina án vandræða. Slagsmálin urðu á Bykroen sem er vinsæll samkomustaður í þessum tíu þúsund manna bæ. -Þetta voru svosem ekki alvarleg slagsmál, sagði Frank sem vinnur á Bykroen í samtali við fréttastofuna. -Menn voru svona með glóðarauga og eitthvað blóðgaðir. -En það var engum vopnum beitt á kránni. Þetta voru aðeins venjuleg kráarslágsmál. Svo fóru Danirnir náttúrlega og sóttu haglabyssu. En þeir komu aldrei með hana hingað inn. Frank sá ekki slagsmálin sjálfur en hafði heyrt að fimm Íslendingar hefðu ráðist á tvo Dani. Því harðneita Íslendingarnir. Einn þeirra var kona sem ekki vill láta nafns síns getið. Hún segir í samtali við Morgunblaðið að hún hafi verið á kránni ásamt eiginmanni sínum tveim sonum og dönskum tengdasyni. Danirnir tveir hafi byrjað að abbast upp á annan soninn og kýlt hann í andlitið. Bróðir hans hafi þá komið til hjálpar. Þeir hafi slegið Danina niður og skilið þá eftir liggjandi á gólfinu. Eftir að heim komu létu Íslendingarnir lögregluna vita af slagsmálunum en hún aðhafðist ekkert. Danirnir mega búast við að vera tugtaðir til vegna skothríðarinnar, en ólíklegt er að nokkur eftirmáli verði fyrir Íslendingana.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Sjá meira