Obama lægði kynþáttaöldur með bjór Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 30. júlí 2009 23:45 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, leysir málin með bjór og skilningi.
Barack Obama gerði sér lítið fyrir og bauð þeldökka háskólakennaranum Henry Louis Gates og hvíta lögregluþjóninum Jim Crowley heim í Hvíta húsið til bjórdrykkju eftir að þeim síðarnefndu hafði lent saman, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Gates, sem er prófessor við Harvard, hafði verið handtekinn við heimili sitt eftir að vitni sá hann reyna að brjótast þar inn. Gates var síðan færður í varðhald eftir að hann sakaði lögregluþjóninn Crowley sem bar að garði um kynþáttafordóma. Nokkuð hefur borið á málinu vestan hafs vegna umræðu á báða bóga um fordóma lögreglu. Meira að segja Obama var gagnrýndur fyrir að hafa sagt við blaðamenn að honum þætti handtakan heimskuleg og hann sakaður um að vita ekki staðreyndir málsins. Obama gerði svo tilraun til að leysa málið með því að bjóða öllum aðilum málsins til bjórdrykkju að heimili sínu í Hvíta húsinu í gær. Hittingur mannanna var kallaður „Bjórfundurinn" í fjölmiðlum, en Obama vísaði því á bug: „Þetta er skemmtilega til orða tekið, en þetta er ekki fundur, strákar. Þetta eru bara þrír menn að fá sér drykk að degi loknum og gefur okkur vonandi færi á að hlusta hvert á annað," segir Obama. „Þetta er tilraun til að eiga persónuleg samskipti þegar eitthvað mál er orðið svo stórt og táknrænt að maður gleymir því að aðilar málsins eru bara fólk, þar á meðal ég sjálfur, sem allt hefur sína galla."
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fleiri fréttir Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Sjá meira