Opinberum störfum fjölgaði um þriðjung 21. nóvember 2009 04:45 Á Landspítalanum Sameining Borgarspítala og Landspítala 2001 og færsla stöðugilda innan heilbrigðisstofnana í miðlægt launakerfi ríkisins 2006 hefur sín áhrif á tölur um störf hjá ríki og borg.fréttablaðið/vilhelm
Samtals 37.400 störf eru hjá hinu opinbera; átján þúsund hjá ríkinu og 19.400 hjá sveitarfélögum. Störfunum hefur fjölgað um um það bil þrjátíu prósent á níu árum. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Þorgerðar K. Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Spurðist hún fyrir um hve margir starfsmenn væru hjá ríki og sveitarfélögum og hver þróunin hefði verið síðastliðin tíu ár. Í svari ráðherra kemur fram að ekki liggi fyrir upplýsingar um fjölda starfsmanna, aðeins fjölda starfa. Eru upplýsingar um fjölda stöðugilda hjá ríkinu fengnar úr launavinnslukerfi ríkisins. Af tölunum má sjá að frá árinu 2000 hefur stöðugildum hjá hinu opinbera fjölgað um 8.700, um 4.000 hjá ríkinu og 4.700 hjá sveitarfélögunum. Í tvígang á tímabilinu fjölgaði stöðugildum hjá ríkinu stórum, í fyrra sinnið árið 2001 þegar Borgarspítalinn sameinaðist Landspítalanum og aftur árið 2006 þegar stöðugildi innan heilbrigðisstofnana fluttust í miðlægt launakerfi ríkisins. Eins og áður sagði eru stöðugildi hjá ríki og sveit nú um þriðjungi fleiri en árið 2000. Hefur þeim fjölgað um 3,6 prósent að meðaltali á ári hjá sveitarfélögum og um 3,2 prósent hjá ríkinu. Sé tillit tekið til ofangreindra kerfisbreytinga nemur fjölgunin hjá ríkinu 2,1 prósenti. Rúmlega 165 þúsund manns voru starfandi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Lætur því nærri að um tuttugu prósent allra starfa séu hjá hinu opinbera: ríki eða sveitarfélögum.bjorn@frettabladid.is Þorgerður K. Gunnardsóttir
Mest lesið Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Erlent Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Innlent Þungt hugsi og í áfalli Innlent Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Innlent Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök Erlent Samþykktu Trump-samninginn einróma Erlent Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Innlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Innlent „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Erlent Fleiri fréttir „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Einn rólegur, annar afar ósáttur Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð „Gott að eldast“ í tuttugu og tveimur sveitarfélögum Uppsagnir á Þjóðminjasafninu Lítil Björg dró stóra Hildi í land Nýr páfi, svik við almenning og loðnasti starfsmaður Rimaskóla Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Þungt hugsi og í áfalli Telja Jón Þór hafa tryllst af afbrýðissemi Viðsnúningur eftir krappan dans Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Rúmir níu milljarðar runnið úr ríkissjóði til flokkanna Ólafur Þór undrandi og dómsmálaráðherra talar um svik við þjóðina Heilsa, vellíðan, friður, réttlæti og jöfnuður mikilvægustu markmiðin Svik við almenning, kerfið og samstarfsfólk Ein breyting á stjórn sem leggja á niður „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Annar snarpur skjálfti í Ljósufjallakerfi Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ „Þetta er svona eitraður kokteill” Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Hefur áhyggjur af því að Amgen „gleypi Íslenska erfðagreiningu og spýti því út“ Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Páfaspenna, drykkjulæti og umdeildur útburður Sjá meira