Enski boltinn

Henry vill snúa aftur til Arsenal - jafnvel sem vantsberi

Ómar Þorgeirsson skrifar
Thierry Henry.
Thierry Henry. Nordic photos/AFP

Framherjinn Thierry Henry hjá Barcelona er sannfærður um að hann muni snúa aftur til Arsenal til þess að vinna með knattspyrnustjóranum Arsene Wenger á einn eða annan hátt. Henry lék í átta ár með Arsenal segir að liðið eigi alltaf stað í hjarta sínu.

„Ég segi alltaf að þú átt að vera á þeim stað sem þér líður best. Ég hef aldrei hætt að elska Arsenal og er sannfærður um að ég muni einn dag snúa aftur þangað. Ég veit ekki hvað ég mun starfa við samt? Kannski sem vatnsberi fyrir liðið. Ég veit það ekki, ég veit bara að ég elska félagið og mun pottþétt fara þangað aftur," segir Henry sem hrósar knattspyrnustjóranum Arsene Wenger í hástert.

„Það er erfitt að hugsa sér Arsenal án Wenger og það er var frábært að æfa og spila fyrir hann og það væri heiður að fá tækifæri til þess að vinna aftur með honum," segir Henry.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×