Samræmt mat tefur um tvö ár 1. október 2009 05:45 „
Vissulega veldur þetta óvissu en við verðum að vinna úr þessari stöðu," segir Björgvin G. Sigurðsson, fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, um þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra að ógilda fyrri ákvörðun Skipulagsstofnunar um línulagnir vegna álversins í Helguvík og orkuframkvæmda á Suðurnesjum. „Frekari töf er óásættanleg. Það þarf að koma í veg fyrir að hún verði," sagði Björgvin, sem boðaði þingmenn kjördæmisins til fundar í gær með embættismönnum frá Skipulagsstofnun. Umhverfisráðuneytinu var boðið að senda fulltrúa á þann fund, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, en þáði ekki boðið. Úrskurður Svandísar þýðir að Skipulagsstofnun þarf á ný að fjalla um málið og ákveða hvort krafist verður sameiginlegs mats á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðra línulagna og virkjanaframkvæmda á Reykjanesi. Björgvin segir að þetta þurfi ekki að tefja málið um meira en tvo mánuði; Skipulagsstofnun hefur einn mánuð til þess að skila af sér nýju áliti og að því loknu þarf ráðherra að skila niðurstöðu innan mánaðar. Ákveði Skipulagsstofnun eða ráðherra hins vegar að sameiginlegt umhverfismat eigi að fara fram getur það tafið málið um 2-3 ár, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins, en Björgvin segir ljóst að samræmt umhverfismat gæti tafið framkvæmdir „um einhver misseri". „Það væri þungbært og ekki í anda stöðugleikasáttmálans ef svo yrði," sagði Björgvin. „Ég er sannfærður um að ekki kemur til þess."- pg / sjá síðu 22
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira