Stjörnusamböndin sem standast tímans tönn 15. desember 2009 01:00 Í skugga sorgar Leikkonan <B>Meryl Streep</B> kynntist eiginmanni sínum, <B>Don Gummer</B>, árið 1978. Streep hafði stuttu áður misst unnusta sinn, leikarann John Cazale, sem hafði þjáðst af krabbameini í nokkurn tíma. Streep og Gummer giftu sig 30. september 1978 á heimili foreldra hennar í New Jersey. Þau eiga saman fjögur börn og hefur ein dóttirin, Mamie, fetað í fótspor móður sinnar og lagt leiklistina fyrir sig.
Þrátt fyrir gjálífi margra Hollywood-stjarna eru einnig til þær stjörnur sem eiga í ástríkum samböndum sem endast út ævina. Leikarinn Paul Newman var einnar konu maður og sagði eitt sinn að heimskulegt væri að fara út að borða hamborgara þegar maður ætti góða steik heima.Samheldin hjón Susan Sarandon og Tim Robbins kynntust við tökur á kvikmyndinni Bull Durham árið 1988. Þau hafa verið saman síðan þá, en hafa aldrei gift sig. Sarandon og Robbins deila áhuga sínum á stjórnmálum og taka gjarnan þátt í ýmsum pólitískum aðgerðum saman. Þau eru búsett í New York-borg og eiga saman tvo syni.Steikin heima Eitt lengsta Hollywood-sambandið er án efa hjónaband Pauls Newman og leikkonunnar Joanne Woodward, en þau gengu í það heilaga árið 1958 og eiga þrjár dætur saman. Newman og fjölskylda bjuggu í Connecticut, fjarri gjálífinu í Hollywood. Newman var mjög trúr eiginmaður og faðir og lét eitt sinn þessi fleygu orð falla: „Því ætti maður að fara út að fá sér hamborgara þegar maður á góða steik heima?“Skrautleg Goldie Hawn og Kurt Russell kynntust fyrst við tökur á kvikmyndinni The One And Only, Genuine, Original Family Band árið 1968 en tóku þó ekki saman fyrr en árið 1983. Hjónin eiga einn son saman en tvö börn Hawn af fyrra hjónabandi líta þó á Russell sem föður sinn og þegar Kate Hudson, dóttir Hawn, eignaðist sitt fyrsta barn skírði hún soninn Ryder Russell í höfuðið á Kurt. Hjónin eru lítið áberandi í slúðurblöðum hið vestra og virðast njóta lífsins saman í rólegheitunum.Sá hana fyrst í auglýsingu Stórleikarinn Michael Caine hefur verið kvæntur fyrirsætunni Shakiru Baksh frá árinu 1973. Caine sá Shakiru í Maxwell kaffi-auglýsingu og heillaðist svo af stúlkunni að hann ákvað að verða sér úti um símanúmer hennar, sem hann og gerði. Hjónin eiga saman eina dóttur, Natöshu.Í frið og ró Hjartaknúsarinn Johnny Depp kynntist eiginkonu sinni, Vanessu Paradis, árið 1998 við tökur á kvikmynd. Þau hafa aldrei gift sig og hefur Depp sagt að það sé óþarfi að breyta einhverju sem sé fullkomið. Þau eiga saman tvö börn, dótturina Lily Rose og soninn Jack. Þau búa í París en eiga einnig hús í Manhattan, Bahama-eyjum og sveitabýli í Suður-Frakklandi. Depp og Paradis reyna að halda sig fjarri hringiðunni í Hollywood og virðast hamingjusöm í hinu rólega lífi í Frakklandi.
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fleiri fréttir Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Sjá meira