Suðurnesja-strákar vilja læra dans 14. desember 2009 03:00 Ásta segir So you think you can dance-þættina vera fyrirmynd að dansnáminu í Danscentrum sem hún opnar í janúar í Reykjanesbæ. Fréttablaðið/Stefán „
Þegar ég var í háskóla var ég oft með námskeið í Keflavík og á Akureyri. Eftir það var maður oft að hitta gömlu nemendurna og það var verið að skora á mann að koma aftur, svo ég tók bara ákvörðun um að láta verða af þessu núna,“ segir Ásta Bærings dansari sem opnar dansskólann Danscentrum í Reykjanesbæ 11. janúar næstkomandi. Sjálf er Ásta aðalkennari skólans, en hún hóf dansnám í Danslistarskóla JSB aðeins fimm ára gömul og lauk dansaradiplómu árið 2001. Síðan þá hefur hún starfað sem dansari og danshöfundur í leikhúsum og tekið þátt í söngleikjum á borð við Fame, Grease og Hafið bláa svo eitthvað sé nefnt. Aðspurð segir hún námið skiptast í tvær annir og fjölbreytileikann vera í fyrirúmi, en nemendur læra ýmsa dansstíla svo sem, jazzdans, street jazz og hip hop. „So You think you can dance-þættirnir eru svolítil fyrirmynd að náminu. Allir læra ákveðna grunntækni, en við viljum að nemendur geti tileinkað sér mismunandi dansstíla,“ segir Ásta. Auk hennar kenna þær Guðríður Hafsteinsdóttir og Ósk Björnsdóttir við skólann, en vegna fjölda stráka sem hafa skráð sig ætlar hún að bæta við kennara. „Það eru rúmlega 100 nemendur búnir að skrá sig og þar af eru rúmlega tuttugu strákar. Ég er náttúrlega tilbúin að gera allt til að halda þeim og vil ekki að þeir flosni upp úr dansnáminu,“ útskýrir hún og hvetur nemendur til að skrá sig sem fyrst, en opið verður fyrir skráningu til 9. janúar á heimasíðu skólans danscentrum.is. -ag
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Hera Björk mun kynna stigin Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Lífið Fleiri fréttir Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Sjá meira