Enski boltinn

Barnes rekinn sem knattspyrnustjóri Tranmere

Ómar Þorgeirsson skrifar
John Barnes.
John Barnes. Nordic photos/AFP

Liverpool goðsögnin John Barnes hefur verið rekinn sem knattspyrnustjóri Tranmere eftir hörmulegt gengi félagsins í upphafi tímabils í ensku c-deildinni.

Barnes tók við stjórnartaumunum hjá Tranmere um miðjan júní en félagið hefur aðeins unnið tvo deildarleiki af ellefu til þessa.

Barnes átti mjög farsælan feril sem leikmaður hjá Watford, Liverpool og Newcastle en sem knattspyrnustjóri hefur hann verið í tómu basli.

Hann byrjaði hjá Celtic og var rekinn þar eftir nokkra mánuði í starfi eftir tap gegn Iverness í skoska bikarnum. Barnes virtist reyndar vera að gera fína hluti með landslið Jamaíku en hann sagði sjálfur upp störfum þar eftir sex mánuði til þess að taka við Tranmere.

Auk Barnes þá var aðstoðarþjálfaranum Jason McAteer einnig sagt upp störfum hjá Tranmere.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×