Innlent

Byssan var í ólæstri hirslu

Frá aðgerðum lögreglu sl. föstudagskvöld.
Frá aðgerðum lögreglu sl. föstudagskvöld.

Drengurinn sem lögreglan handtók síðast liðið föstudagskvöld vopnaður skammbyssu stal vopninu úr ólæstri hirslu. ,,Hann nálgaðist byssuna á heimili föður síns sem var í ólæstri hirslu þar," sagði Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi.

Allt tiltækt lögreglulið frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra tók þátt í leitinni af drengnum sem er 16 ára á föstudagskvöldið. Mikill viðbúnaður var hverfinu og óttaðist lögregla að vegfarendum og íbúum í hverfinu stafaði ógn af drengnum. Hann gaf sig að lokum fram og afhenti skammbyssuna mótþróalaust.

Brot á reglum um geymsluhætti skotvopna getur leitt til sviptingu byssuleyfis eða sekta.

Friðrik sagðist ekki geta staðfest hvort að faðirinn sé fyrrum lögreglumaður og liðsmaður víkingasveitarinnar.












Tengdar fréttir

Byssumaðurinn fundinn

Maðurinn sem lögreglan leitaði að í gærkvöld og talið var að væri vopnaður er fundinn. Mikill viðbúnaður var í Gerðahverfi í kvöld vegna mannsins og óttaðist lögregla að vegfarendum og íbúum í hverfinu stafaði ógn af honum. Maðurinn var vopnaður að sögn lögreglu.

Sérsveitin leitar byssumannsins - Myndband

Lögreglan fékk tilkynningu rétt fyrir klukkan 19:00 í gærkvöldi um vopnaðan mann í Gerðahverfi í Reykjavík. Mikill viðbúnaður fór í gang vegna mannsins og óttaðist lögregla

Vopnaður maður í Gerðunum

Lögreglan er með mikinn viðbúnað í Gerðahverfi í Reykjavík en grunur leikur á að maður vopnaður byssu sé á ferð umhverfið. Liðsmenn sérsveitarinnar og sjúkraflutningamenn hafa verið kallaðir til.

Stal skammbyssu frá pabba

Maðurinn sem lögregla leitaði að í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um vopnaðann mann í Gerðahverfi í Reykjavík er sextán ára gamall og hefur komið við sögu lögreglu áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×