Hamarinn og Fangavaktin á sama tíma 14. september 2009 05:30 Íslensk sunnudagskvöld Þáttaraðirnar Hamarinn og Fangavaktin verða sýndar á svipuðum tíma, hvor á sinni stöðinni. Hamarinn verður klukkan 20.10 á RÚV en Fangavaktin hefst klukkan 20.30. Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, vonar að einhver lausn finnist á þessu vandamáli en Þórhallur Gunnarsson kveðst ekki geta fært til í sinni dagskrá, glæpatengt efni megi ekki vera of snemma á dagskrá. <B>Reynir Lyngdal telur þennan árekstur vera bagalegan og biðlar til sjónvarpsstjóranna að þeir finni leið út úr vandanum.</B> „
Þetta er mjög óþægilegt og auðvitað vona ég að við Þórhallur [Gunnarsson] getum fundið einhverja lausn á þessu í sameiningu,“ segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Dagskrártími Fangvaktarinnar og Hamarsins rekast á. Sama mál kom upp í fyrra þegar Svartir englar hjá RÚV og Dagvakt Stöðvar 2 sköruðust. Þá var gripið til þess ráðs að færa Svarta engla framar í dagskrána en að sögn Þórhalls Gunnarssonar, dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins, kemur það ekki til greina nú. „Í fyrra færðum við Evu aftar í dagskrána, höfðum hana á eftir Svörtum englum. Það voru hins vegar margir foreldrar sem kvörtuðu yfir því að vera með glæpatengt efni svona snemma kvölds og því sjáum við ekki aðra leið nú. Við verðum því með fréttaaukann strax á eftir sunnudagsfréttum og svo Hamarinn klukkan 20.10,“ útskýrir Þórhallur en Hamarinn verður frumsýndur 4. október. Fangavaktin fer hins vegar í loftið tuttugu mínútum síðar, klukkan hálf níu, en sýningar á þeirri þáttaröð hefjast 27. september. Pálmi telur það ekki áhorfendum til hagsbóta að hafa leikið íslenskt efni á sama tíma hjá báðum sjónvarpsstöðvum. „Efni af þessu tagi er af skornum skammti og mér finnst þetta ekki gott.“ Þórhallur tekur alveg undir það sjónarmið og bætir því við að þetta sé ekki meðvituð ákvörðun. „Við getum hins vegar ekki tekið mið af öðrum stöðvum og svo hafa hinar svokölluðu plússtöðvar komið að góðum notum þegar svona kemur upp á,“ útskýrir dagskrárstjórinn í Efstaleitinu. Reynir Lyngdal, leikstjóri Hamarsins, er ekki ánægður með þessa ráðstöfun þótt hann hafi auðvitað lítið með þetta að gera. „Það væri nú betra ef þetta væri hvort á sínum tímanum en sama daginn,“ segir Reynir og biðlar til sjónvarpsstjóranna að þeir finni nú einhverja lausn á þessum vanda líkt og gert var í fyrra. „Ég vil ekki líta á innlent leikið efni sem einhverja keppni, mér finnst að þetta eigi að snúast um að gera sem mest af góðu, íslensku leiknu efni. En svo er náttúrlega alltaf hægt að kaupa DVD-diskinn eða horfa á þetta á plúsnum.“ Ragnar Bragason, leikstjóri Fangavaktarinnar, segir að sér finnist þetta bara fáránlegt. „Ég yrði mjög ósáttur ef menn næðu ekki lendingu í þessu máli. Mér fannst alveg frábært að geta horft á tvo íslenska þætti á sunnudagskvöldi í fyrra,“ segir Ragnar og bætir því við að sjónvarpsstjórarnir tveir séu báðir vitibornir menn. „Og ég bara treysti því að þeir komist að vitrænni niðurstöðu. Þeim tókst það í fyrra.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira