Teiknari á uppleið í Kaupmannahöfn 29. ágúst 2009 03:00 Langar að gefa út bók Jón Kristján rekur fyrirtæki í Kaupmannahöfn sem býr til teiknimyndir.
Jón Kristján Kristinsson er ungur teiknari sem býr í Kaupmannahöfn og rekur þar fyrirtækið Framebender auk fjögurra annarra. „Fyrirtækið er aðeins tveggja mánaða gamalt en við höfum haft nóg að gera síðan við komum þessu á laggirnar og höfum meðal annars gert auglýsingar fyrir veitingastaðinn Jensens bøfhus og fyrir Hróarskelduhátíðina. Núna erum við einnig að vinna að tónlistarmyndbandi fyrir íslensku hljómsveitina Valrós,“ segir Jón Kristján, en hann og söngvari hljómsveitarinnar eru gamlir vinir. „Þetta var uppástunga frá hljómsveitarmeðlimum og ég ákvað að slá til. Lagið kallast Millionaire og mun myndbandið fjalla um milljónarmæring sem vill kaupa hvað sem er handa konu sinni. Stíllinn verður svolítið gamaldags og í anda teiknimynda á borð við Tomma og Jenna og Bleika pardusinn.“ Jón Kristján segir vinnuna við myndbandið vera mjög tímafreka, enda þurfi að teikna hvern ramma fyrir sig. „Þar sem við gerum þetta ekki í þrívídd þá þarf að teikna ramma fyrir ramma, þannig að það getur tekið okkur allt að tvo mánuði að teikna einnar mínútu mynd.“ Aðspurður segist Jón Kristján hafa mikinn áhuga á að gera teiknimyndasögu í framtíðinni og gefa út í bókarformi. Áður hefur hann hlotið fyrstu verðlaun í myndasögukeppni á vegum DR.dk, en sú saga fjallaði um búsáhöld. „Ég tók þátt í teiknimyndakeppni fyrir tveimur árum síðan og hlaut fyrstu verðlaun fyrir söguna sem ég sendi inn. Ég hefði mikinn áhuga á að fara lengra með þetta og jafnvel gefa út bók með teiknimyndaseríum, en það er erfitt að finna einhvern til að styrkja þess háttar verkefni í þessu árferði,“ segir Jón Kristján að lokum. - sm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira