Þúsundum nauðgað ár hvert 24. september 2009 05:00 Á myndinni má sjá frá vinstri Hlín Helgu Guðlaugsdóttur, Björn Inga Hilmarsson, Diljá Ámundadóttur, Þóreyju Vilhjálmsdóttur, Ragnhildi Gísladóttur, fyrrverandi og núverandi meðlimi í stjórn V-dagssamtakanna á Íslandi, og Stefán Inga Stefánsson framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi. Fréttablaðið/GVA
Skipulagðar nauðganir á konum og börnum eru aðför gegn mannréttindum sem alþjóðasamfélagið ætti að beita sér gegn með enn frekari hætti en gert er nú, segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, UNICEF. Stefán kynnti söfnunarátak UNICEF og V-dagssamtakanna til handa fórnarlömbum nauðgana í Austur-Kongó ásamt Diljá Ámundadóttur, formanni V-dagssamtakanna á Íslandi. Mörg þúsund konum og börnum er nauðgað og misþyrmt í Austur-Kongó ár hvert. Þrátt fyrir að skrifað hafi verið undir friðarsamkomulag stríðandi fylkinga í landinu árið 2003 ríkir enn óöld þar og meðal fórnarlamba eru konur og börn sem eru beitt kynferðisofbeldi. Í stríðinu og í aðdraganda þess hófust skipulagðar nauðganir og benti Stefán í framsögu sinni á að umfang skipulagðra nauðgana í hernaði hefði vaxið gríðarlega á átakasvæðum undanfarna áratugi og mjög mikilvægt væri að berjast gegn því. Hvergi hefur þeim þó verið beitt með hrottafengnari hætti en í Austur-Kongó og er talið að fórnarlömbin séu mörg hundruð þúsund. UNICEF hefur starfað að uppbyggingu samfélagsins í Austur-Kongó og unnið að verkefnum sem miða að því að uppræta viðhorf sem stuðla að kynferðisofbeldi, ýta á stjórnvöld til að grípa til árangursríkra aðgerða og bæta lög og lina þjáningar barnungra þolenda á svæðum þar sem ástandið er alvarlegast. Um þúsund þolendur kynferðisofbeldis fá í hverjum mánuði stuðning í gegnum verkefni sem eru styrkt af UNICEF. Felix Ackebo, sérfræðingur hjá UNICEF í Gomo í austurhluta landsins, segir erfitt að skýra hvers vegna nauðgunum sé beitt í svo miklum mæli í landinu. Að einhverju leyti eigi það þó menningarlegur rætur. Nauðganir hafi verið og séu enn notaðar sem vopn í átökum. Mikilvægt sé að ná tökum á því ástandi og uppræta þá fordóma sem fórnarlömbin mæti í samfélaginu. Hann segir að væntanlega muni taka mörg ár að ná tökum á ástandinu. „En vonin er alltaf til staðar.“ Fyrir tveimur árum hófst samstarf alþjóðlegu V-dagssamtakanna og UNICEF til styrktar fórnarlömbum kynferðisglæpa í Austur-Kongó. Meðal þess sem söfnunarfé hefur verið notað til er uppbygging Ánægjuborgarinnar (City of Joy) sem er athvarf fyrir þolendur nauðgana í Bukavu-héraði í Austur-Kongó en þar fá konur þjálfun í ýmsum hagnýtum verkum til að efla sjálfstraust þeirra. Einnig hafa V-dagssamtökin og UNICEF styrkt Panzi-spítalann í sama héraði þar sem konur fá læknishjálp í kjölfar nauðgana. Þær eru oft mjög illa útleiknar og hefur verið misþyrmt í kringum kynfærin með hryllilegum hætti. „Það er ótrúlegt hvað hægt er að byggja upp konur sem hefur verið misþyrmt kynferðislega. Það er alltaf von,“ segir Stefán, sem sjálfur hefur kynnst sambærilegu uppbyggingarstarfi í Sierra Leone. sigridur@frettabladid.is Unnið úr áfallinu Fórnarlömb kynferðisglæpa í Austur-Kongó á bænastund í kapellu í athvarfi í borginni Goma í austurhluta landsins. Nordicphotos/AFP
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira