Yfirgáfu bílinn eftir að hann festist 26. september 2009 06:00
Tveir menn sem leitað var að við Hvalfell inni af Botnsdal í Hvalfirði í fyrrinótt fundust heilir á húfi eftir nokkurra klukkustunda leit áttíu björgunarsveitarmanna í slagviðri í fyrrinótt. Mennirnir höfðu beygt til vesturs af svokallaðri Uxahryggjaleið sem liggur frá Þingvöllum í Borgarfjörð. Slóðinn sem þeir óku liggur að Hvalvatni inni af botni Hvalfjarðar. Þegar jeppabifreið þeirra festist yfirgáfu þeir bílinn og ætluðu sér að ganga í Botnsdal en villtust fljótlega. Þeir létu ættingja vita af sér um tíuleytið og höfðu þeir samband við björgunarsveitir um miðnætti. Mennirnir voru í símasambandi um nóttina en vissu ekki hvar þeir voru, enda myrkur, ausandi rigning og þeir án staðsetningartækja. Þeir urðu viðskila og fannst sá fyrri um hálffjögur en sá síðari ekki fyrr en undir morgun. Mennirnir voru nokkuð hraktir eftir næturgönguna. Að sögn Frímanns Andréssonar hjá svæðisstjórn björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu hefði tekið miklu styttri tíma að finna mennina hefðu þeir haldið kyrru fyrir í bílnum, en bíll björgunarsveitar Borgarfjarðar ók fram á hann þegar klukkan tvö í fyrrinótt. - sbt
Mest lesið Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Sjá meira