Kominn í úrslit á Cannes með Formúlu 1-teiknimynd 26. september 2009 06:00 Í hópi áhugaverðustu barnaþátta Franco and Formula Fun þykir vera í hópi áhugaverðustu barnaþáttanna á sjónvarps-og auglýsingahátíðinni í Cannes sem hefst í næstu viku. Sigvaldi J. Kárason leikstýrir þáttunum, sem fjalla um strákinn Franco og ferðalög og formúlubílana hans. „
Það er ekkert barnaefni sem tengist Formúlu 1-keppninni beint en við munum vonandi breyta því,“ segir Sigvaldi J. Kárason leikstjóri. Hann tekur nú þátt í sannkölluðu frumkvöðlaverkefni, teiknimyndaseríu sem nefnist Franco and Formula Fun. Þættirnir fjalla um strákinn Franco sem hverfur inn í Formúlu 1-heiminn og flýgur heimshornanna á milli í flugvélinni sinni. Um borð eru síðan formúlu-fun bílarnir og lætur Franco þá keppa á ævintýralegum brautum. Búið er að gera stiklu fyrir seríuna og hugmyndin keppir til úrslita á sjónvarps- og auglýsingahátíðinni í Cannes sem hefst í næstu viku. „Hún þykir ein af fimm áhugaverðustu myndunum fyrir börn á markaðnum í dag ef marka má þetta,“ segir Sigvaldi en þegar hafa nokkrar sjónvarpsstöðvar sett sig í samband. „Þetta hefur gengið vonum framar hjá okkur og vonandi gengur þetta allt saman upp.“ Sigvaldi segir að upphaflega hugmyndin komi frá konu að nafni Marina Nicholas. Maðurinn hennar er forfallinn Formúlu 1-aðdáandi en henni þótti vanta leið til að tengja saman eiginmanninn og son þeirra hjóna. „Og þaðan er þessi hugmynd kominn um Franco og Formúlu 1.“ Sigvaldi var síðan fenginn til að stjórna enda orðinn nokkuð þekktur í þessum geira fyrir störf sín í Latabæ. Hann fór síðan á kreik, fékk inni hjá hinu virta myndveri Blue-Zoo Studios í London og eftir það fór serían í fimmta gír. Sigvaldi hafði einnig nokkra Íslendinga með sér út til Bretlands til að vinna að verkefninu. „Og þeir stóðu sig allir alveg ótrúlega vel. Það var líka gaman að geta gefið þeim tækifæri til að flýja land í smá tíma.“ Og að sjálfsögðu er smá boðskapur í seríunum og þetta snýst ekki allt um hraðskreiða bíla. „Nei, við leggjum mikla áherslu á landafræði og þættirnir snúast líka mikið um vináttu og baráttuna gegn einelti.“ Leikstjórinn segir þau heldur ekkert vera í felum með þá staðreynd að Franco og Formula Fun sé hugsuð fyrir stráka. „Nei, það er alveg kórskýrt að þetta er strákavara, við erum ekkert að reyna að ýta því undir stól.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira