Bæta aðgengið fyrir fatlaða Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. september 2009 14:40 Kjartan Magnússon borgarfulltrúi segir að aðkoman að Egilshöll hafi háð starfsemi hússins.
Framkvæmdir standa nú yfir við Egilshöll í Grafarvogi, sem miða að því að auka nýtingu hússins og bæta íþróttaaðstöðu þar. Kjartan Magnússon, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar segir að framkvæmdum við frístundaheimili fatlaðra sé lokið og starfsemi hafin. Þá séu framkvæmdir vegna bætts aðgengis og frágangs á bílastæðum langt komnar og verði að mestu lokið um næstu mánaðamót. Stefnt sé að því að stækkuð og endurbætt aðstaða fyrir fimleikastarfsemi verði tilbúin fyrir áramót. Framkvæmdirnar eru í samræmi við samkomulag Reykjavíkurborgar við rekstrarfélag Egilshallar um afnot af mannvirkinu. Samkomulagið tryggir áframhaldandi öfluga íþróttastarfsemi í höllinni á vegum Reykjavíkurborgar. Kjartan segir að við samningsgerðina hafi Reykjavíkurborg lagt sérstaka áherslu á frágang bílastæða og aðgengi hússins. „Aðkoma að Egilshöllinni hefur verið óviðunandi allt frá opnun hússins árið 2002. Þetta hefur háð starfsemi hússins, meðal annars frístundaheimili fyrir fötluð börn og ungmenni úr hverfinu og ég er því mjög ánægður að nú hilli undir lok framkvæmdanna. Ég geri mér góðar vonir um að samkomulagið muni auka nýtingu hússins og efla íþrótta- og æskulýðsstarf í borginni," segir Kjartan. Kjartan segir að með samkomulaginu og yfirstandandi framkvæmdum hafi tekist að tryggja áframhaldandi íþróttastarfsemi í húsinu sem hafi verið í óvissu eftir að fyrri rekstraraðili hússins komst í þrot síðastliðinn vetur. Að auki tryggi samkomulagið framtíðaraðstöðu fyrir Ungmennafélagið Fjölni en þess í stað hefur félagið fallið frá fyrirætlunum um uppbyggingu íþróttaaðstöðu í hverfinu.
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ 30 ára afmæli Blómstrandi daga í Hveragerði „Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Sjá meira
„Þetta eru báðir mjög alvarlegir atburðir“: Eldislaxar í Haukadalsá og gat á sjókví í Dýrafirði