Ný Seðlabankalög ef vextirnir lækka ekki 26. september 2009 03:00 Ríki í ríkinu Vilhjálmur Egilsson sagði á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva að setja yrði ný lög um bankann ef þeir stæðu ekki við markmið um vaxtalækkanir. fréttablaðið/heiða
Stjórnvöld verða að taka ráðin af Seðlabankanum og setja ný lög um bankann ef stýrivextir verða ekki lækkaðir verulega á næstu vikum. Þessa skoðun setti Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fram á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra setti fram sömu skoðun í júní. „Ég lít svo á að það sé hlutverk ríkisstjórnarinnar að sjá til þess að Seðlabankinn taki þátt í þessu samfélagi eins og aðrir," sagði Vilhjálmur og vitnaði í takmark stöðugleikasáttmálans um að stýrivextir yrðu lækkaðir niður í eins stafs tölu fyrir 1. nóvember. Hann sagði að efnahagslegar forsendur til að halda stýrivöxtum svo háum sem raun ber vitni væru ekki til staðar. Ef fyrirtæki sjá sér hag í því að fjárfesta með lækkun vaxta og ef ráðist er í boðaðar framkvæmdir er Vilhjálmur þess fullviss að samdrætti, sem er spáð, verði snúið til hagvaxtar sem muni nema tveimur til fjórum prósentum á næsta ári. „Ef það verður samdráttur á næsta ári þá er hann í boði Seðlabankans," sagði Vilhjálmur. Hann sagði óhætt að segja að ófullkomið efnahagslíkan, sem búið væri til í Seðlabankanum, myndi ráða öllu í íslensku samfélagi. Vilhjálmur tók svo djúpt í árinni að segja að ef breyta þyrfti lögum um bankann til að ná þjóðinni út úr kreppunni þá ætti einfaldlega að ganga í það verk. Vilhjálmur Egilsson Þessi skoðun hefur verið sett fram áður. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra útilokaði ekki í viðtali við Fréttablaðið í byrjun júní að lögum um Seðlabankann yrði breytt. Það ætti við ef bankinn gengi gegn þjóðarhag og efaðist um að sjálfstæði bankans væri skynsamlegt. „Ef bankinn rís ekki undir því að axla samfélagslega ábyrgð sína, hvers vegna er hann þá ekki færður aftur undir lýðræðislegt ákvörðunarvald?" spurði Ögmundur. Hann sagði sjálfstæði Seðlabankans hluta af peningahyggju liðinna áratuga og sá tími væri á enda runninn. Um hvort til stæði að breyta lögum um bankann á kjörtímabilinu, sagði Ögmundur: „Allt hlýtur að vera í stöðugri endurskoðun, lög um Seðlabankann líka. Ef hann er farinn að ganga gegn þjóðarhag, þá hljótum við að taka hans starfsemi til endurskoðunar. Það er sem betur fer ekki bannað með lögum að breyta lögum." svavar@frettabladid.is
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira