Hefur mætt á 50% funda í Skipulagsráði Breki Logason skrifar 31. október 2009 16:15 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. MYND/VALLI
Framsóknarmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur mætt á 18 af þeim 36 fundum sem hann hefur átt að sitja í Skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið haldnir 43 fundir síðan Sigmundur var kosinn í ráðið þann 21.ágúst 2008 en hann var í leyfi á 7 af þeim fundum. Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í ráðinu kölluðu eftir yfirliti um fundarsetu Sigmundar á síðasta fundi. Þá var einnig kallað eftir upplýsingum um launakjör Sigmundar fyrir umræddan tíma og kostnað við að kalla inn varamenn. Vísir fór yfir fundargerðir Skipulagsráðs á þessu tímabili og var þetta niðurstaðan. Sigmundur mætti einnig fimm sinnum of seint á fundi. Á fyrsta fundi sínum þann 27.ágúst 2008 var Sigmundur kosinn varaformaður ráðsins en sú tillaga var samþykkt einróma. Hann mætti ágætlega til að byrja með en strax eftir áramótin fór fjarvera hans sífellt að aukast. Hann mætti á fund þann 17.desember en síðan sást hann ekkert fyrr en í lok júní á þessu ári. Þann 11.mars var reyndar lagt fram bréf borgarstjóra frá 4.mars þar sem Sigmundur óskaði eftir leyfi frá nefndarsetu í ráðinu frá og með 3.mars og út apríl. Tillagan var samþykkt einróma og Brynjar Fransson var kjörinn varaformaður skipulagsráðs í stað Sigmundar. Eftir að Sigmundur lét sjá sig í júní hefur hann mætt þokkalega, þó hann hafi verið fjarverandi á síðustu tveimur fundum Skipulagsráðs. Líkt og flestir vita er Sigmundur einnig formaður Framsóknarflokksins, auk þess sem hann situr á Alþingi fyrir flokkinn. Ekki náðist í Sigmund Davíð við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðslur, möguleg smithætta í fargufum og tekist á um samfélagsmiðlabann Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Sjá meira