Eiginfjárstöðu og gengishruni að kenna 31. október 2009 05:30 Fyrrverandi bæjarstjóri vísar því á bug að leigusamningur við Fasteign ehf. skipti sköpum um stöðu sveitarfélagsins.
Sigurður Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi, segir að vegna veikrar eiginfjárstöðu sveitarfélagsins hafi hrunið á gengi krónunnar valdið meiri skaða á efnahag Álftaness en flestra annarra sveitarfélaga. Álftanes hefur nú óskað eftir aðstoð Eftirlitsnefndar um fjármál sveitarfélaga við að greiða úr miklum fjárhagsvanda. Sigurður vísar því á bug að leigusamningur við Eignarhaldsfélagið Fasteign vegna nýrrar sundlaugar í bænum sé að kaffæra sveitarfélagið, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Sigurður segir að erlendar skuldir Álftaness hafi verið 500 milljónir króna fyrir hrun. Þær hækkuðu í 1.000 milljónir á síðasta ári og hafa aukist um 250 milljónir króna til viðbótar á þessu ári. Leigusamningurinn við Fasteign ehf. er með 55 prósenta gengistryggingu. Sigurður segir að vissulega sé það þung byrði á sveitarfélaginu eins og mál hafi þróast en tap síðasta árs nam 832 milljónum og segir Sigurður ljóst að bygging sundlaugarinnar hafi ekki valdið því, heldur gengishrunið. Höfuðvandinn sé veik eiginfjárstaða fyrir hrun. Helmingur erlendu skuldanna sé vegna fjárfestinga á árunum 2002-2006 og hafi að mestu verið venjulegar lántökur sveitarfélags með milligöngu Lánasjóðs sveitarfélaga. Lausn á vandanum segir Sigurður felast í því að ríkið axli ábyrgð gagnvart sveitarfélögunum og þeim skaða sem þau hafi orðið fyrir vegna hrunsins. Einnig þurfi Jöfnunarsjóður að auka greiðslur til Álftaness. Þær hafi ekki verið í samræmi við það sem vera ber. Öll bæjarstjórnin sé sammála um þessar áherslur. Hann segist ekki telja að nauðsynlegt verði að nýta neyðarheimildir í lögum til að hækka útsvar og fasteignaskatta vegna ástandsins á Álftanesi.- pg
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira