Milli himins og jarðar 18. desember 2009 05:00 leiklist Axel Hallkell Jóhannesson á útjaðri netsins yfir sviðsbrún Stóra sviðsins. Fréttablaðið/Stefán
Nú standa yfir æfingar á sviðsetningu Vesturports og Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi á Faust. Leikmyndina fyrir sýninguna gerir Axel Hallkell Jóhannesson en hún er afar sérstök og mótar í raun þessa aldagömlu arfsögn vestrænnar menningar alveg upp á nýtt. Sá Faust sem leikhúsgestir munu sjá frá frumsýningunni þann 15. janúar verður allt allt öðruvísi en leikhúsgestir hafa til þessa séð og þótt víðar væri leitað. Faust er kunnastur í gerð Goethes hins þýska sem samdi verkið í löngum bálki sem sjaldan sést. Þá hafa óperuhöfundar leitað í söguna um fræðimanninn aldna sem selur sál sína djöflinum og þiggur æskuna fyrir. Marlowe vann einnig eina útgáfu verksins fyrir svið, samtímamaður Shakespeares. Þegar hópurinn tók að skoða söguna ákváðu menn að semja sína eigin útgáfu og eru þau Björn Hlynur, Gísli Örn, Nína Dögg og Víkingur skráð höfundar verksins. Sagan gerist bæði á jörðu og eins og leikmyndin er – á himni: „Þau voru með einhverja hugmynd um að nota net, þegar ég kom að þessu,“ segir Axel. Og í samvinnu þeirra Gísla, sem leikstýrir sýningunni, varð það úr að leitað var að almennilegu sirkusneti og það fannst í Kanada hjá aðila sem framleiðir net fyrir fjölleikahús og reyndar fleiri aðila. Það trúir því enginn nema hann sjái það – en yfir aðalsal Borgarleikhússins og vel inn á svið er nú strengt net, fest í bakhlið salarins og langt inn í sviðið. Það er strengt á vírum og þurfti að leita að burðarpunktum í húsinu með aðstoð verkfræðinga, festa allt víraverkið upp með sérstökum burðarbitum á sérpantaða strekkjara með öryggislokum því netið fer undir brunatjaldið og verður að vera mögulegt að fella það á augabragði ef þörf krefur. Á netinu rétt eins og framsviðinu fer atburðarás sýningarinnar fram. Axel er ekki margmáll um hvað gerist á netinu sjálfu en af aðstæðum má ljóst vera að leikhópurinn hefur í þessari sýningu möguleika á að koma áhorfendum sínum heldur betur á óvart. Axel segir að síðustu vikunnar hafi hann lagt nótt við dag: hann er líka að vinna leikmynd á sama tíma fyrir fjórða ár Listaháskólans á nýju verki Sigtryggs Magnasonar eftir nokkurt hlé: „Þau vilja koma í kippum verkefnin,“ segir hann. „Ég veit varla hvað ég heiti lengur. Það var svo mörgu ósvarað þegar hugmyndin tók að þróast, en núna er þetta farið að sýna sig.“ Það er ekki fyrir lofthrædda leikara að vinna í þessari leikmynd og verður gaman að sjá þá fóta sig. Leikarar í sýningunni eru Björn Hlynur Haraldsson, Þorsteinn Gunnarsson, Hilmir Snær Guðnason, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason, Víkingur Kristjánsson og Jóhannes Níels Sigurðsson. Þórður Orri Pétursson fær það spennandi verkefni að lýsa sýninguna en Filippía Elísdóttir gerir búninga og Sigríður Rósa Bjarnadóttir gervi. Tónlistin er eftir þá Nick Cave og Warren Ellis, en Frank Þórir Hall er tónlistarstjóri og Thorbjørn Knudsen hannar hljóðheim verksins. Frumsýning er eftir rétt mánuð, þann 15. janúar og mun vekja mikla athygli þegar himinn og helvíti takast á um sálirnar. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Bob Mackie er látinn Lífið Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Lífið samstarf Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira