Nýtt tónlistarblað lítur dagsins ljós 10. desember 2009 05:00 Pétur Grétarsson. Nýr tónlistarfjölmiðill, Hljómgrunnur, kemur út á morgun sem fylgirit Fréttablaðsins.
Nýtt tónlistarblað, Hljómgrunnur, kemur út í fyrsta sinn með Fréttablaðinu á morgun á degi íslenskrar tónlistar. Samtök tónlistarrétthafa á Íslandi, Samtónn, standa á bak við blaðið, sem ætlunin er að komi út mánaðarlega. Ritstjóri verður Pétur Grétarsson, sem hefur haft umsjón með Íslensku tónlistarverðlaununum. „Við höfum gert þetta í kringum stórviðburði eins og Íslensku tónlistarverðlaunin að koma út sérblaði," segir Pétur. „Þetta er aðallega hugsað sem minnismiði til fólks um þetta frábæra tónlistarlíf í landinu og við viljum senda það út í áþreifanlegu formi öðru hverju." Listi verður yfir tónlistarviðburði í blaðinu þar sem fólk getur fengið gott yfirlit yfir allt það helsta sem verður í boði þann mánuðinn. Þessi nýi fjölmiðill verður kynntur enn frekar á fundi Samtóns á morgun. Þar verður einnig kynnt hver hlýtur Bjarkarlaufið í ár, auk þess sem nafnið á nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsinu verður opinberað. Nýtt fyrirkomulag Íslensku tónlistarverðlaunanna verður sömuleiðis kynnt. Nú þurfa flytjendur ekki lengur að borga með tilnefningum sínum en á síðasta ári nam gjaldið níu þúsund krónum fyrir hverja plötu sem var send inn. Plötufyrirtækið Kimi Records ákvað af þessum sökum að sniðganga verðlaunin í byrjun ársins vegna þessa. „Þetta er miklu eldri umræða. Við höfum verið að leita leiða til að fella gjöldin niður en öll umræða hefur áhrif," segir Pétur. Peningurinn vegna tilnefninganna var notaður í fjármögnun fyrir verðlaunahátíðina og því stendur fjáröflun yfir hjá Pétri og samstarfsmönnum til að fá aukinn pening. „Við þurfum að finna nálægt milljón annars staðar," segir hann. „Þetta er mjög þungur pakki. Allt sem kostar peninga er flókið í dag." Tónlistarverðlaunin verða afhent í sextánda sinn í Þjóðleikhúsinu 3. mars næstkomandi. - fb
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira