Tvíkynhneigður kennari slær í gegn 25. ágúst 2009 02:00 Sigurstranglegur Danyl Johnson söng sig inn í hug og hjörtu Breta í fyrsta þætti nýrrar X-Factor-seríu og Simon Cowell fullyrti að frammistaða hans væri besta fyrsta prufa sem hann hefði séð.
X-Factor-söngþættirnir hafa notið gífurlegra vinsælda í Bretlandi og hófst sjötta þáttaröðin þar í landi á laugardaginn. Fyrstu þættirnir eru yfirleitt misgóðir og bjuggust fáir við að sjá hugsanlegan sigurvegara stíga á svið í fyrsta þættinum. Það ætlaði því allt um koll að keyra þegar 27 ára dans- og leiklistarkennari að nafni Danyl Johnson söng Joe Cocker-útgáfuna af With a Little Help From My Friends. Tilþrifin voru slík að hann náði áhorfendum í salnum á sitt band á fyrstu sekúndum lagsins og söng sig inn í hug og hjörtu dómaranna Simons Cowell, Dannii Minogue, Louis Walsh og Cheryl Cole sem stóðu öll upp til að klappa honum lof í lófa. Cowell, sem er þekktur fyrir hreinskilni og dómhörku, fullyrti að frammistaða Danyls væri besta fyrsta prufa sem hann hefði séð síðan hann hóf að dæma í American Idol 2001. Í viðtali við Daily Mirror segist Danyl ekki eiga orð yfir viðbrögðunum sem hann fékk, en hann beið í fjórtán klukkutíma eftir að komast í prufurnar í O2 Arena í London. Aðspurður segist hann vera á lausu og ætla að einbeita sér alfarið að keppninni á komandi vikum, en hann fer ekki leynt með tvíkynhneigð sína og segir nægan tíma til að hitta draumaprinsinn eða -prinsessuna síðar. Mörg hundruð þúsund manns hafa þegar horft á upptökuna af prufu Danyls á Youtube og er hann af mörgum talinn vera „næsta Susan Boyle“ sem sló svo eftirminnilega í gegn í þættinum Britain‘s Got Talent. -ag
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira