Hvalaskoðunarfyrirtækin vilja veiðimenn úr Faxaflóa 17. febrúar 2009 09:35 „
Ef svo ótrúlega vill til að ráðamenn leyfi hrefnuveiðar þarf Reykjavíkurborg að standa við bakið á hvalaskoðunarfyrirtækjum við Reykjavíkurhöfn, að Faxaflóinn verði griðland þar sem veiðar verða ekki leyfðar," segja forsvarsmenn hvalaskoðunarfyrirtækjanna Eldingar og Hvalalífs í bréfi til Áslaugar Friðriksdóttur, formanns menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Þau Rannveig Grétarsdóttir, hjá Eldingu, og Hilmar Stefánsson, hjá Hvalalífi, segja að ef svo illa fari að af hvalveiðum verði hljóti að vera hægt að veiða á öðrum svæðum en í Faxaflóanum. Að stjórnvöld skuli íhuga hvalveiðar í óþökk helstu viðskiptalanda Íslendinga sé nógu mikil ógn. Í ljósi efnahagshrunsins í landinu megi Íslendingar varla við fleiri hryðjuverkastimplum og ekki veiti af að standa vörð um þau fyrirtæki í landinu sem þegar eru að afla gjaldeyristekna og skapa störf . Elding og Hvalalíf óska þess því að Reykjavíkurborg lýsi yfir eindregnum stuðningi við fyrirtækin. Í bréfinu til formanns menningar- og ferðamálasviðs kemur fram að Hrefnum hafi fækkað mikið frá því að vísindaveiðar hófust árið 2003 en þá hafi þær verið taldar um 43.633. Samkvæmt nýjustu talningum Hafrannsóknarstofnunar séu þær einungis 10.680. Vísbendingar séu um að þær séu jafnvel enn færri, eða nær 6.000. Vísindalegar rannsóknir sem Elding hafi látið vinna síðastliðin tvö ár bendi til að ekki séu ýkja mörg dýr sem komi hér við heldur sé verið að skoða sömu dýrin ár eftir ár. Starfsfólk áætli að fjöldi hrefna geti verið frá nokkrum dýrum upp í hundrað dýr en misjafnt sé hvar í Faxaflóa þau haldi sig. Hvalaskoðunarfyrirtækin hafi þurft að þola það að hvalveiðimenn séu á veiðum á sömu slóðum og verið sé að fara með ferðamenn í hvalaskoðun. Þannig hafi loforð um að veiðarnar færu fram á öðrum svæðum ítrekað verið svikin. Forsvarsmenn hvalaskoðunarfyrirtækjanna segja að áform um stórfelldar veiðar, með útgefnum kvóta á 100 hrefnur á ári næstu fimm árin, geti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir gæði hvalaskoðunarferða. Rekstrargrundvöllur Hvalaskoðunarfyrirtækjanna sé þar með í hættu eftir áralangt starf í uppbyggingu í greininni. Tugmilljóna króna markaðssetning á hverju ári frá upphafi hafi þar með verið kastað á glæ.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Sjá meira