Innlent

Þingflokkurinn vill halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram

Steingrímur J. Sigfússon fjármálraáðherra og formaður VG sagði að loknum þingflokksfundi að allir þingmenn og ráðherrar hefðu lagt á það áherslu að ríkisstjórnarsamstarfinu yrði haldið áfram. Hann sagðist sleginn yfir ákvörðun Ögmundar Jónassonar sem hefur sagt sig úr ríkisstjórn en sagðist jafnframt virða ákvörðunina. Steingrímur sagði þingflokkinn ákveða hver yrði eftirmaður Ögmundar og það yrði gert fljótlega. ÞIngflokkur VG ætlar að funda aftur seint í kvöld.

Steingrímur sagði mikilvægt að á næstu dögum yrði greitt úr þeim verkefnum sem séu óunnin. Aðspurður hvort átök væru í flokknum vegna Icesave-málsins, þar sem Ögmundur hefði sagt af sér vegna þess, sagði hann að Ögmundur hefði ekki efnislega verið á móti málinu.

„Hann hefur væntanlega útskýrt þetta sjálfur en hann var ekki sáttur með hvernig þetta var sett upp gagnvart ríkisstjórninni, annars ætla ég ekki að svara fyrir það hverjar hans ástæður voru," sagði Steingrímur.

Steingrímur sagði ennfremur að það væru tvö erfið mál sem væru óleyst nú og snéru annarsvegar að greiðsluskuldbindingum á mögulegum eftirstöðvum lánsins eftir árið 2024. Síðan væri eitt tiltekið lagalegat atriði sem væri sömuleiðis erfitt viðfangs. „Þetta eru ekki margir þættir en þeir eru snúnir og við verðum að finna lausn á þeim."

Hann sagðist ekki vita til þess að fleiri breytingar á ríkisstjórninni væru framundan. „En ég ítreka það sem ég sagði áðan að hver og einn þingmaður og ráðherra lýstu eindregnum stuðningi við að ríkisstjórnin héldi áfram."

Steingrímur sagði að ríkisstjórnarfundur sem boðaður hefur verið klukkan 18:00 hafi verið löngu ákveðinn og þar muni flokkarnir m.a. fara yfir fjárlagafrumvarpið sem lagt verður fram á Alþingi á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×