Dorrit reddaði Winslet 25. ágúst 2009 06:30 Stoð og stytta <B>Margrét Dagmar</B> fer fögrum orðum um <B>Dorrit Moussaieff</B> sem fékk <B>Kate Winslet</B> til að tala inn á heimildarmyndina Sólskinsdrenginn en hún fjallar um son Margrétar, Kela, og baráttu hans við einhverfu. Dorrit segist bara hafa verið milligöngumaður, Margrét eigi allt hrós skilið fyrir það þrekvirki sem hún hafi unnið við að vekja fólk til umhugsunar um einhverfu. „
Margrét Dagmar spurði hvort ég gæti hjálpað sér við að fá enska leikkonu til að tala inn á myndina og það var lítið mál enda finnst mér hún hafa unnið þrekvirki við að vekja fólk til umhugsunar um einhverfu,“ segir forsetafrúin Dorrit Moussaieff. Hún á heiðurinn af því að Óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet talar inn á íslensku heimildarmyndina Sólskinsdrenginn sem fjallar um einhverfan son Margrétar, Kela. Dorrit segir að Margrét Dagmar eigi allt hrós skilið fyrir þrotlausa vinnu sína, hún hafi eingöngu verið milligöngumaður um aðkomu Kate. „En mér fannst að því stærra nafn sem við fengjum, þeim mun meiri athygli gæti myndin fengið og Ísland,“ útskýrir Dorrit. Og niðurstaðan varð Kate Winslet. Ensk útgáfa myndarinnar verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto þann 12. september. Sólskinsdrengurinn hefur engu að síður þegar vakið mikla athygli og bandaríska fréttastöðin CNN hefur óskað eftir að fá Friðrik Þór Friðriksson, leikstjóra myndarinnar, í hálftíma viðtal á Íslandi. „Við höfðum mjög þröngan tímaramma að vinna með og í svona málum er nauðsynlegt að hafa alla öngla úti,“ segir Dorrit. Góðvinur hennar, Michael Caine, hafi til að mynda unnið með Winslet í kvikmynd og þau sambönd hafi hún nýtt sér. „Og svo er vinur minn vinur umboðsmannsins hennar og svona rúllaði boltinn, koll af kolli. Þegar þú færð sömu fyrirspurnina úr mörgum áttum þá verður það erfiðara fyrir þig að segja nei,“ útskýrir Dorrit sem tekur þó skýrt fram að Kate hafi umsvifalaust sagt já. Dorrit hefur háar hugmyndir um Ísland og hvað landið getur gert fyrir einhverfu. „Mig langar til að á Íslandi verði miðstöð fyrir einhverfu, lík þeirri sem sagt er frá í myndinni og er í Texas. Ég vona líka að það verði framhald af þessari mynd, ég held bara að Margrét viti það ekki enn sjálf.“ Margrét Dagmar átti ekki orð yfir forsetafrúna og Kate. Sagði þær vera ómetanlegan styrk fyrir sig. „Okkur Friðrik Þór, leikstjóra, grunaði aldrei að hún myndi fá Kate Winslet. Við báðum hana bara um að athuga hvort einhver ensk leikkona væri á lausu til að tala inn á myndina,“ segir Margrét. Hún upplýsir jafnframt að Kate hafi heillast af landslaginu í myndinni og hún hafi lýst því yfir að nú myndi hún láta verða af því að heimsækja Ísland. „Hún er alvöru stjarna og miklu fallegri í eigin persónu. Hún var fagmanneskja fram í fingurgómana, „very good“ var ekki nógu gott fyrir hana, allt varð að vera „fabulous“ eða „perfect“.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Lífið „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Tímalausar og fallegar brúðargjafir Lífið Risastór menningarhátíð á Flateyri Menning Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Bíó og sjónvarp Skákborðsréttir nýjasta matartískan Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Sjá meira