Sólkrossinn gefinn út í Þýskalandi 2. september 2009 04:15 Ánægður með samninginn. Óttar Martin er kominn á samning hjá þýska forlaginu Der Aufbau sem hyggst gefa út síðustu bókina hans, Sólkrosssinn. „
Loðinn um lófana? Tja, þetta er gott forlag og forlög borga eftir stærð. Þetta forlag er mjög stórt þótt þeir upplifi sig örugglega ekki eins og þeir séu einhverjir höfðingjar,“ segir Óttar Martin Norðfjörð en þýski útgefandinn Der Aufbau hefur tryggt sér útgáfuréttinn að skáldsögu Óttars, Sólkrossinum. Þjóðverjar hafa undanfarin ár verið ákaflega hrifnir af íslenskum rithöfundum, Arnaldur Indriðason er vinsæll spennusagnahöfundur þar og rithöfundar á borð við Auði Jónsdóttur og Guðrúnu Evu Mínervudóttur hafa fengið verk sín útgefin í Þýskalandi að undanförnu. Der Aufbau er virt forlag og gefur út marga af snjöllustu rithöfundum heims, þeirra á meðal Paul Auster. „Þetta er því mikill heiður fyrir mig og ég átti alls ekki von á þessu.“ Óttar hefur enga eina skýringu á því hvers vegna Íslendingar séu svona vel liðnir í Þýskalandi. „Ætli þetta sé ekki bara þetta norræna og þá höfðar Sólkrossinn náttúrlega vel til þeirra, hún svolítið norræn,“ útskýrir hann. Óttar situr nú sveittur við skriftir, er að leggja lokahöndina á nýja bók en hún á að koma út um þessi jól. Bókinni hefur verið gefið nafnið Paradísarborgin og er spennusaga án glæps. „Spennusagan er komin í ákveðið hjólfar, einhver leysir eitthvert morðmál og allir verða glaðir. Þetta er svolítið staðnað form. Bókin sækir svolítið í ástandið og það er náttúrlega stærsti glæpurinn hvernig komið var fram við íslensku þjóðina,“ útskýrir Óttar. - fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Andlátið virðist ekki hafa borið að með saknæmum hætti Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira