Strumparnir aftur í sjónvarp 24. ágúst 2009 06:00 Strumparnir 50 ára Laddi talar fyrir alla Strumpana, Kjartan galdrakarl og köttinn hans í Strumpaþáttunum sem hafa verið betrumbættir fyrir sýningar á Stöð 2 í september, en í ár fagna Struparnir 50 ára afmæli sínu.
Stöð 2 hefur tryggt sér sýningaréttinn á Strumpaþáttunum og munu sýningar hefjast í næsta mánuði. Þættirnir sem um ræðir eru sömu Strumpaþættir og nutu mikilla vinsælda á níunda áratug síðustu aldar, en Stöð 2 hefur endurbætt þættina með því að hreinsa þá og færa á stafrænt form. Þá er einnig búið að endurhljóðvinna talsetningu Þórhalls Sigurðssonar leikara, eða Ladda, sem talaði fyrir alla Strumpana, Kjartan galdrakarl og köttinn hans. Aðspurður segist Laddi vera ánægður með að Strumparnir birtist aftur á skjánum. „Ég var einmitt að fárast yfir því að Strumparnir væru ekki komnir á DVD, því þeir eru bara til á spólum. Það eru komnar tvær kynslóðir sem hafa fylgst með þeim og þeir eru sígildir,“ segir Laddi. Í ár fagna Strumparnir 50 ára afmæli sínu og af því tilefni er kvikmynd í vinnslu. Ekki þykir ólíklegt að Laddi verði fenginn til að talsetja myndina yfir á íslensku og sjálfur segist hann til í slaginn ef til þess kemur. „Ég vona að ég fái allavega eitthvað hlutverk. Ég efast um að þeir láti mig lesa allt aftur, en það væri gaman,“ segir hann og brosir.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira