Ásmundur bankastjóri Landsbankans - staðan auglýst í haust 5. febrúar 2009 16:07 Ásmundur Stefánsson, settur bankastjóri Landsbankans.
Bankaráð Landsbankans, NBI hf., ákvað í dag að fresta að auglýsa stöðu bankastjóra þar til í haust. Elín Sigfúsdóttir, núverandi bankastjóri, hefur gert bankaráðinu grein fyrir því að hún hyggist standa við fyrri ákvörðun um að láta af störfum um næstu mánaðamót eins og hún hafði áður greint frá. Bankaráð hefur falið Ásmundi Stefánssyni, núverandi formanni bankaráðs, að taka við hlutverki bankastjóra þar til staðan verður auglýst og í hana ráðið á haustmánuðum. Haukur Halldórsson, varaformaður bankaráð,s mun taka við formennsku þess og varamaður Ásmundar, Ása Richardsdóttir, tekur sæti í bankaráðinu. „Meginástæða frestunarinnar er sú tímabundna óvissa sem um þessar mundir ríkir í rekstrar- og viðskiptaumhverfi bankans sem torveldar framtíðarsýn og um leið markmiðssetningu til lengri tíma litið. Af hálfu bankaráðsins verður þeirri vinnu hraðað eins og auðið er við þessar aðstæður," segir í yfirlýsingu bankaráðs NBI. Vegna ákvörðunar bankaráðs vill Elín koma eftirfarandi á framfæri: „Í ljósi tilkynningar bankaráðs er rétt að árétta að ákvörðun mín um að láta af störfum sem bankastjóri um næstu mánaðamót stendur óbreytt. Að ósk verðandi bankastjóra mun ég verða honum til aðstoðar eftir þörfum um einhvern tíma. Ég vil þakka bankaráði gott samstarf, ítreka þakkir mínar til starfsfólks Landsbankans fyrir ánægjulegt samstarf í gegnum árin og til þeirra fjölda viðskiptavina sem ég hef átt samskipti við um leið og ég óska bankanum allrar farsældar í framtíðinni. Með kveðju, Elín Sigfúsdóttir Bankastjóri"
Mest lesið Sundlaugargestur handtekinn Innlent Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Fleiri fréttir Heilunarguðþjónustur í Lágafellskirkju njóta mikilla vinsælda „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Segir dómsmálaráðherra hafa talað inn í óttann Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Evrópa verði að hætta að stóla á Bandaríkin og ólögleg bílastæðagjöld Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Deilt um fund Trump og Pútín og leigubílamarkaðurinn Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Sundlaugargestur handtekinn Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Sjá meira