Svíar elska Skip Stefáns Mána 4. desember 2009 07:00 Rithöfundurinn snjalli fellur vel í kramið hjá gagnrýnanda Kristianstadsbladet í Svíþjóð. fréttablaðið/stefán
Skipið eftir rithöfundinn Stefán Mána er spennusaga ársins að mati gagnrýnanda Kristianstadsbladet í Svíþjóð. „Hann fær bækur okkar besta rithöfundar, Stiegs Larsson, til að líta út eins og texti í sunnudagaskóla,“ segir gagnrýnandinn. Bætir hann við að bókin hefði verið kjörin bíómynd fyrir hinn látna meistara Stanley Kubrick til að leikstýra. Einnig segir hann að Stefán Máni sé Samuel Beckett spennusagnanna. „Þetta er alveg frábært,“ segir Stefán Máni. „Ég er forfallinn Stanley Kubrick-aðdáandi og það væri draumur í dós ef kannski þrítugur Stanley Kubrick fengi að spreyta sig á þessu. Mér finnst æðislegt hrós að hann sé nefndur í þessu samhengi en Stieg Larsson hef ég ekki lesið ennþá.“ Stefán er einnig sérlega ánægður með samanburðinn við írska Nóbelsverðlaunaskáldið Samuel Beckett. „Ég er einmitt líka mikill aðdáandi hans. Mér finnst þetta æðislegt, hvort sem ég stend undir þessu eða ekki. Ég hef alltaf verið með sterka taug í súrrealisma, þannig að ég skil þetta alveg.“ Skipið hefur áður fengið góða dóma í Þýskalandi og í Danmörku, þar sem Jyllands Posten gaf bókinni fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Bókin kemur næst út í Frakklandi strax eftir áramót og nefnist þar Næturfarmur, eða Cargo de nuit. Bók Stefáns, Ódáðahraun, verður svo að öllum líkindum gefin út í Danmörku síðar á næsta ári. Hvað varðar kvikmyndaréttinn að Skipinu sem Zik Zak hafði tryggt sér þá er hann aftur kominn í hendurnar á Stefáni Mána. „Rétturinn er runninn út og hefur ekki verið endurnýjaður þannig að ég er aftur kominn með boltann í hendurnar,“ segir hann.- fb
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira