Innlent

Síbrotamaður bankaði upp á hjá lögreglu

Vegalaus maður bankaði upp á hjá lögreglunni á Akureyri í gærkvöldi og baðst gistingar í fangaklefa, þar sem hann hefði ekki í nokkurt hús að venda og væri peningalaus. Að vanda sló lögregla manninum upp í tölvukerfi lögreglunnar og þegar í ljós kom að maðurinn var alræmdur afbrotamaður að sunnan, með um það bil 600 afbrot á samviskunni í gegnum tíðina, var honum umsvifalaust veitt húsaskjól til að tryggja öryggi bæjarbúa og eigna þeirra í nótt. Og það þarf ekki að orðlengja að ekkert afbrot kom til kasta lögreglunnar á Akureyri í nótt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×