Sonur Rúnars Júl spilar með GCD á Ljósanótt 29. ágúst 2009 05:45 gcd Frá vinstri: Gunnlaugur Briem, Júlíus Guðmundsson, Bubbi Morthens og Bergþór Morthens. Þeir ætla að heiðra minningu Rúnars Júlíussonar á Ljósanótt 4. september. fréttablaðið/arnþór „
Þetta væri ekki hægt nema vegna þess að partur af Rúnari er með okkur,“ segir Bubbi Morthens. Rokksveitin GCD ætlar að koma saman á Ljósanótt í Keflavík 4. september til að heiðra minningu fyrrum félaga síns Rúnars Júlíussonar sem lést á síðasta ári. Yfirskrift viðburðarins verður „Óður til Rúnars“. Júlíus, sonur Rúnars, mun fylla skarð hans bæði sem bassaleikari og söngvari. „Þó svo að ég sé með stærri löpp en pabbi þá er erfitt að fylla í hans spor,“ segir Júlíus við hlátrasköll nýrra félaga sinna. Hann hlakkar mikið til að stíga á svið með Bubba, bróður hans Bergþóri og trommaranum Gunnlaugi Briem en gerir sér um leið grein fyrir því að hann er undir þrýstingi um að standa sig vel, enda var faðir hans prímusmótorinn í sveitinni ásamt Bubba. GCD starfaði í þrjú sumur í byrjun tíunda áratugarins og gaf út þrjár plötur. Hún var gríðarlega vinsæl, keyrði vítt og breitt um landið og spilaði ávallt fyrir fullu húsi. Lög eins og Kaupmaðurinn á horninu, Mýrdalssandur og Sumarið er tíminn eru ennþá feikivinsæl og munu lifa í minningu Íslendinga um ókomin ár. Þeir félagar segja það vel við hæfi að koma aftur saman í Keflavík til að spila Rúnari til heiðurs. „Þetta er einstakt „móment“. Við erum í Keflavík sem er uppeldisbær Rúnars og með son hans um borð. Ég er alveg viss um að karlinn verður þarna með okkur,“ segir Bergþór og Bubbi tekur í sama streng: „Það er gaman að fá tækifæri til að kveðja hann almennilega. Eins og hann blasti við okkur þá var einhvers konar búdda í honum. Hann var sérstakur til orðs og æðis. Rúnar var mjög vandað eintak og það er þakklæti í mínu hjarta að geta hvatt „gamla“ svona,“ segir hann og bætir við: „Það verður rosalega gaman að spila á Ljósanótt. Þetta er flott staðsetning og alltaf gríðarleg stemning þarna. Þessi tegund tónlistar með GCD er algjörlega heiðarleg. Það er ekki verið að finna upp hjólið en menn voru að spila með hjartanu. Þegar þetta er gert á réttum forsendum þá virkar það.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira