Fjölskrúðug og yndisleg múm 29. ágúst 2009 02:15 múm Hljómsveitin múm hefur fengið góða dóma fyrir sína nýjustu plötu.
Dómar um nýjustu plötu múm, Sing Along to Songs You Don’t Know, hafa verið að birtast í erlendum fjölmiðlum að undanförnu. Bestu dómana fær hún í breska tímaritinu Mojo, eða fimm stjörnur, en The Guardian gefur henni hins vegar þrjár stjörnur og tímaritið Q aðeins tvær af fimm mögulegum. Tónlistarsíðan Drowned in Sound gefur henni 7 af 10 mögulegum. „Platan var tekin upp þegar efnahagskreppan á Íslandi skall á. Þrátt fyrir að textarnir gætu átt erfitt með að standa undir 18% vöxtunum vonaðist sveitin eftir því að óánægja landsmanna myndi veita henni innblástur,“ segir gagnrýnandinn. „Það hefur margborgað sig hjá múm að hafa víkkað út sjóndeildarhring sinn með því að bæta fleiri hljóðfærum í sarpinn. Bestu augnablikin á Sing Along … bjóða upp á fjölskrúðugra landslag en nokkru sinni fyrr.“ Musicomh.com gefur plötunni fjóra í einkunn af fimm mögulegum. „Ef þið hafið ekki kynnst viðkvæmum og yndislegum hljómi sveitarinnar er rétta stundin runnin upp.“ Hér í Fréttablaðinu fékk hún fjórar stjörnur af fimm mögulegum og var sögð besta íslenska plata ársins hingað til. Múm er lögð af stað í umfangsmikla tónleikaferð um Evrópu og Norður-Ameríku til að fylgja plötunni eftir. Sveitin spilaði í Bretlandi fyrir skömmu en fram undan eru tónleikar í Þýskalandi, Belgíu og Frakklandi. Ferðin til Norður-Ameríku hefst 21. október og stendur yfir til 7. nóvember. Þar verður spilað í New York, Toronto, Seattle, Los Angeles og á fleiri góðum stöðum.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira