Enski boltinn

Guðjón: Slök frammistaða

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Þórðarson.
Guðjón Þórðarson.

Guðjón Þórðarson, stjóri Crewe, var ekki par sáttur við leikmenn sína eftir að Crewe tapaði, 0-1, fyrir Bournemouth í dag.

Leikið var fyrir framan rúmlega 4.000 áhorfendur á hinum skemmtilega Fitness First-velli.

„Þetta var bara slök frammistaða og undir pari. Við vorum ekki að gera þá einföldu hluti sem skiluðu okkur þrem sigrum sem og við héldum hreinu í þrem leikjum í röð," sagði Guðjón eftir leikinn.

„Við ætluðum að keyra upp hraðann og reyna að sækja sigur. Það gekk ekki eftir enda vorum við of hikandi í okkar leik," sagði Guðjón en mark var dæmt af Crewe í leiknum sem hann sá ekkert athugavert við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×