Afskriftir nema 4-5 landsframleiðslum 7. nóvember 2009 06:00 alþingi Þingmenn lýstu áhyggjum af því að geðþóttaákvarðanir byggju að baki ákvörðunum ríkisbankanna um afskriftir á lánum fyrirtækja.Fréttablaðið/GVA
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að afskriftir lána vegna bankahrunsins verði óhjákvæmilega þær mestu sem dæmi eru um í sögu vestrænna hagkerfa. „Líklega tapast fjórar til fimm landsframleiðslur í hagkerfinu,“ sagði Gylfi í utandagskrárumræðum á Alþingi í gær. Tapið lendir að langmestu leyti á erlendum kröfuhöfum bankanna. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, efndi til umræðu um afskriftir skulda og samkeppnisstöðu fyrirtækja. Hann sagði nauðsynlegt að tryggja gagnsæi og réttlæti við afgreiðslu málefna fyrirtækja í ríkisbönkunum. „Af hverju fá sumir afskriftir en aðrir ekki?“ spurði Guðlaugur og sagði að viðskiptaráðherra virtist ekki eiga önnur svör en þau að skipa nýjar nefndir til að fjalla um málið. Gylfi Magnússon sagði að taka þyrfti tillit til samkeppnissjónarmiða og skoða hvort endurreisa ætti fyrirtækjasamsteypur sem valdið hefðu fjölmörgum vandamálum í samkeppnismálum á undanförnum árum. „Mín skoðun er að það eigi ekki að gera nema í algjörri neyð,“ sagði Gylfi Magnússon. Eftirlit verði haft með því að verklagsreglum sé fylgt og ekki afskrifað meira en þarf til að eftir standi lífvænleg fyrirtæki, sem geta staðið í skilum. Ekki eigi að færa nýjum eða gömlum eigendum neinar gjafir. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að sextíu til sjötíu prósent fyrirtækja í landinu þyrftu á aðstoð að halda. Fjölda fyrirtækja hefði verið stjórnað á óábyrgan hátt. Þau hefðu skuldsett sig gríðarlega. Þessum fyrirtækjum ætti að skipta upp og setja þau á markað, „þannig að íslensk heimili geti fjárfest í þessum fyrirtækjum og þannig stuðlað að endurreisn Íslands“. Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagðist sakna þess að ekki væru til skýrar, einfaldar og gagnsæjar reglur um málið og spurði hvort rétt væri að Alþingi setti lög um skilyrði afskrifta og upplýsingaskyldu bankanna. „Það er alveg ljóst að það er mikið geðþóttavald í gangi varðandi það hverjir fá afskrifaðir skuldir og hvernig það er gert. Þetta býður upp á spillingu,“ sagði Gunnar Bragi.peturg@frettabladid.is
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Fleiri fréttir Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi Sjá meira