Innlent

Leituðu til ráðherra til að sækja bráðkvaddan mann

Flugtími stórrar björgunarþyrlu kostar 700 þúsund krónur. Leiguþyrla sem sótti látinn mann á Herðubreið kostar mun minna.fréttablaðið/stefán
Flugtími stórrar björgunarþyrlu kostar 700 þúsund krónur. Leiguþyrla sem sótti látinn mann á Herðubreið kostar mun minna.fréttablaðið/stefán

Björgunarsveitarmenn á Húsavík fullyrða að Landhelgisgæslan hafi hafnað beiðni þeirra um að þyrla sækti lík manns sem lést í fjallgöngu á fjallið Herðubreið. Svæðisstjóri björgunarsveitarinnar leitaði til dómsmálaráðherra og var þyrla frá Norðurflugi leigð til að ná í lík mannsins. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að aldrei hafi annað staðið til en að sækja líkið en ódýrari kostur hafi verið valinn en að senda stóra björgunarþyrlu.

Maðurinn sem lést var í hópi göngufólks á fjallinu. Neyðarkall barst björgunarsveitum um hádegisbilið á föstudag og lagði björgunar­sveitin Strákur í Mývatnssveit þegar af stað. Jafnframt var óskað eftir þyrlu, sem var sett í viðbragðsstöðu. Stuttu síðar kom í ljós að maðurinn var látinn, samkvæmt úrskurði læknis sem í gönguhópnum var.

Guðmundur Salómonsson, svæðisstjóri björgunarsveitarinnar á Húsavík, segir að Landhelgisgæslan (LHG) hafi þverneitað að senda þyrlu þegar ljóst var að maðurinn var látinn - sú skýring hafi verið gefin að of kostnaðarsamt væri að senda þyrlu. Hafði hann samband við Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra sem hafði samband við LHG. Að sögn Guðmundar varð símtal hans til þess að LHG leigði þyrlu frá Norðurflugi sem sótti líkið á fjallið. „Það átti ekki að senda þyrlu eftir að í ljós kom að maðurinn var látinn og með það vorum við mjög óhress. Ég talaði við ráðherra, sem bar árangur."

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, hafnar fullyrðingum um að ekki hafi átt að senda þyrlu. „Við hins vegar gerðum það á haganlegri máta en að senda stóra þyrlu. Þetta var unnið í fullu samráði við slysavarnafélagið Landsbjörg."

Georg bendir á að með því að senda minni þyrlu hafi sparast milljónir króna. Hver flugtími stóru Super Pumu-þyrlu Landhelgisgæslunnar kostar 700 þúsund krónur en þyrlunnar sem sótti líkið 180 þúsund krónur. Flugið fram og til baka frá Reykjavík hefði tekið um sex klukkustundir, að sögn Georgs.

Guðmundur vill koma því skýrt á framfæri að ósk um aðstoð þyrlu hafi komið til vegna þeirrar hættu sem björgunarsveitar­mönnum stafar af því að færa líkið til byggða ofan af fjallinu. Til verksins hefði þurft allt að 50 manns í leiðangur af þessu tagi, sem tæki upp undir sólarhring.

svavar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×