Fundi ítrekað frestað á Alþingi Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. desember 2009 20:38 Hlé hefur verið gert á þingfundi í kvöld vegna umræðna um gögn í málinu. Mynd/ Anton.
Þingfundi hefur ítrekað verið frestað á Alþingi í kvöld vegna fundar sem boðað var til í fjárlaganefnd. Ástæðan fyrir fundinum í fjárlaganefnd, sem var ekki á dagskrá Alþingis, er sú að þar takast menn á um hvort aflétta eigi trúnaði af frekari gögnum í málinu. Samkvæmt upplýsingum Vísis er um að ræða gögn frá samningaviðræðunum sem fram fóru síðastliðið vor. Þessi umræddu gögn hafa ekki komið fyrir sjónir almennings áður. Fundur átti að hefjast að nýju klukkan hálfníu en þá tilkynnti forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, að fundi yrði frestað áfram til klukkan tíu mínútur í níu. Klukkan tíu mínútur í níu tilkynnti Ásta Ragnheiður svo að fundi yrði aftur frestað um hálftíma, eða þangað til 20 mínútur yfir níu. Til stóð að ljúka þriðju umræðu um Icesave í kvöld og greiða atkvæði um frumvarpið á morgun.
Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Erlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Fleiri fréttir Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Sjá meira