Hundrað útlendingar sóttu um 27. ágúst 2009 05:45 garðar stefánsson Um eitt hundrað umsóknir frá ungu erlendu kvikmyndagerðarfólki hafa borist vegna kvikmyndasmiðjunnar.fréttablaðið/valli „
Þetta er stóraukinn fjöldi,“ segir Garðar Stefánsson sem skipuleggur kvikmyndasmiðju Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem verður haldin í næsta mánuði. Um eitt hundrað umsóknir frá ungu kvikmyndagerðarfólki í Evrópu og Ameríku hafa borist vegna smiðjunnar en á síðasta ári voru þær um 25 talsins. „Ísland er orðið mjög þekkt land og alræmt. Við erum búin að fá mjög mikla umfjöllun í fréttunum og það er líka ódýrt að koma hingað. Við höfum líka verið að kynna þetta vel úti,“ segir Garðar um þennan mikla fjölda. Í kvikmyndasmiðjunni, sem stendur yfir í þrjá daga, fær fólk tækifæri til að hittast í Reykjavík og upplifa það sem er að gerast í kvikmyndaiðnaði beggja vegna Atlantshafsins. Staðsetningunni er ætlað að brúa bilið á milli heimsálfanna tveggja, bæði landfræðilega og menningarlega. „Hugmyndin er að fólk sé að fara úr stuttmyndinni yfir í mynd í fullri lengd og þessi smiðja er ætluð sem stökkpallur fyrir það. Þátttakendurnir fá ráðleggingar frá gestum sem sækja hátíðina heim og íslenskum leikstjórum,“ segir Garðar. Búið er að loka á umsóknir erlendis frá en Íslendingum stendur enn til boða að sækja um, eða þangað til 1. september. Á endanum verður 50 til 60 manna hópur valinn og því komast mun færri að en vilja. Í framhaldinu gefst hinu unga kvikmyndagerðarfólki færi á að senda inn mynd til sýningar á hátíðinni og keppa um hvatningarverðlaun RIFF, Gullna eggið. - fb
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Fleiri fréttir Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Sjá meira