Evrópulán Orkuveitunnar ekki tengt Icesave Kristján Már Unnarsson skrifar 3. nóvember 2009 12:24
Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, hafnar því að það sé Icesave-samningunum að þakka að Orkuveitan fái nú, eftir ársbið, afgreitt þrjátíu milljarða króna lán frá Evrópska fjárfestingabankanum.Lánið frá Evrópska fjárfestingarbankanum var fryst fyrir ári þegar íslenska fjármálakerfið hrundi. Síðastliðinn föstudag fékk Orkuveitan loks grænt ljós frá bankanum. Athygli vekur að það gerist tíu dögum eftir að viðauki við Icesave-samkomulagið var undirritaður við Breta og Hollendinga, sem leiddi til þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn afgreiddi efnahagsáætlun Íslands í síðustu viku.Stjórnarformaður Orkuveitunnar neitar því að lán Evrópska fjárfestingarbankans hafi verið háð lausn Icesave-deilunnar. Guðlaugur segir að kenningasmiðir landsins geti eflaust lagt í það að tengja þetta saman. Það sé ekki þannig. Orkuveitan sé búin að vinna í þessu í rúmt ár og náið saman með áhættudeild bankans að meta ástandið. Þetta hafi bara tekið þennan tíma, óháð öðrum lánveitingum. Eingöngu hafi verið horft til Orkuveitunnar og til ytri aðstæðna. Þeir hjá Evrópska fjárfestingabankanum hafi ekki tengt þetta við Icesave-samningana. Þeir hafi ekki skipt neinu máli, segir Guðlaugur.
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira