Benitez: Ekki hægt að kaupa Torres fyrir allan heimsins pening Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. september 2009 11:30 Fernando Torres sést hér við það að skora sitt annað mark á móti Hull um helgina. Mynd/AFP
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, var að sjálfsögðu sáttur með frammistöðu landa síns Fernando Torres um helgina en spænski landsliðsframherjinn skoraði glæsilega þrennu í 6-1 sigri Liverpool á Hull í ensku úrvalsdeildinni. Benitez ítrekaði líka enn á ný að Torres væri ekki til sölu. Torres er nú markahæsti leikmaðurinn með átta mörk í fyrstu sjö umferðunum en þetta var fjórða þrenna hans fyrir Liverpool síðan að hann var keyptur frá Atletico Madrid sumarið 2007. Benitez hefur sagt frá að nokkur félög hafi verið á höttunum eftir Fernando Torres í sumar og þó að hann hafi ekki nefnt þau lið á nafn er nokkuð víst að það hafi verið lið Manchester City og Chelsea. „Hversu mikils virði er Torres? Þið mynduð segja að minnsta kosti 70 milljónir punda. Ég segi ekki að hann sé bestu í heiminum í dag en hann er ungur og getur orðið enn betri. Hann er einn af þeim bestu en ef hann vill það þá getur hann bætt sig," sagði Benitez. „Það voru umboðsmenn að spyrja okkur í sumar hversu mikið við vildum fá fyrir hann en við sögðum að hann væri ekki til sölu. Á þessari stundu er ekki hægt að kaupa Torres fyrir allan heimsins pening," sagði Benitez. Fernando Torres hefur leikið 64 leiki fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og skorað í þeim 46 mörk. Hann er enn bara 25 ára gamall og er nýbúinn að framlengja samning sinn við Liverpool til ársins 2013.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Hættir með landsliðinu Fótbolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira