Útvarpskona hló alla leiðina á spítalann 18. september 2009 07:00 Héldu hana hafa vankast Margrét Erla Maack mætt í vinnuna eftir vespuslysið í Kópavogi. Fréttablaðið/Valli „
Það er mesta mildi að það var ekki bíll á eftir mér. Þá hefði getað farið miklu verr,“ segir Margrét Erla Maack, plötusnúður í Popplandi Rásar 2. Hún lenti í vespuslysi á miðvikudagskvöldið. „Ég var á leið til kærastans míns í Kópavogi – það er náttúrulega algjört bull að eiga kærasta í Kópavogi – og rann í bleytunni þegar ég var að fara niður af Hamraborgarbrúnni. Mér tókst að rétta mig af en lenti þá í öðrum polli og missti hjólið undan mér. Gott fólk kom og hjálpaði mér og svo kom löggan og sjúkrabíll. Sjúkraflutningamennirnir héldu að ég hefði vankast af því að ég hló svo mikið á leiðinni á spítalann. En ég var nú bara að hlæja af því það minnti mig svo mikið á Playmo-karla þegar þeir voru að bera mig inn í bílinn á sjúkrabörunum.“ Margrét brákaðist á ökkla og þarf að styðja sig við hækju og hún er skrámuð á hökunni. „Ég gæfi ekki mikið fyrir hausinn á mér ef ég hefði ekki verið með hjálm. Svo var ég líka í leðurbangsajakka með silíkon-hlífum úti um allt. Spegill brotnaði á vespunni og önnur hliðin á henni er hrufluð. Konurnar á bráðamóttökunni sögðu mér að þetta hefði verið annað vespuslysið á miðvikudaginn.“ Margréti finnst hún berskjölduð í umferðinni á vespunni sinni. „Ég er á fermingarhjóli sem kemst ekki nema upp í 45 km hraða. Aðrir ökumenn eru oft mjög óþolinmóðir á eftir mér og margir taka lítið tillit til manns. Þetta getur verið hættuspil. Fólk sem vinnur við að aka – leigubílar og fólk á merktum bílum – er oft lítið með hugann við aksturinn og eru þeir ökumenn sem svína mest fyrir mann. Ef það er svínað fyrir mig hringi ég oft í fyrirtækin og er ógeðslega leiðinleg í símanum.“ Margrét fékk frí í gær en er mætt í Popplandið í dag eins og ekkert hafi í skorist. „Mér er samt dálítið brugðið. Ég held það þurfi smá átak að setjast aftur upp á vespuna.“
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira