Töframannshundur í Oliver 5. desember 2009 07:15 Baldur Brjánsson ásamt tíkinni Mjöll sem fer með hlutverk í söngleiknum Oliver! í Þjóðleikhúsinu. fréttablaðið/gva „
Þetta er svo góður hundur og vel upp alinn. Hann fer létt með þetta,“ segir töframaðurinn fyrrverandi, Baldur Brjánsson. Tíkin hans, bolabíturinn Mjöll, leikur í söngleiknum Oliver! sem verður settur á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu annan í jólum í leikstjórn Selmu Björnsdóttur. „Selma heimsótti mig einhvern tímann fyrir ári. Hún vissi að ég átti hund. Svo hringdu þeir frá Þjóðleikhúsinu og spurðu hvort þetta væri einhver möguleiki. Ég gaf náttúrlega grænt ljós á það með vissum skilyrðum,“ segir Baldur. Mjöll verður í áberandi hlutverki sem hundur vonda karlsins Bills Sikes, sem Þórir Sæmundsson leikur, og verður hún ansi ófrýnileg með lepp fyrir öðru auganu. „Hún er mjög meðfærileg og stillt,“ segir Baldur og er sannfærður um að hún eigi eftir að slá í gegn í söngleiknum. „Hún er voðalega hlýðin og hún getur velt sér yfir og gert einhverjar kúnstir.“ Baldur er mikill hundavinur og ekki er langt síðan hann átti tvo bolabíta og fimm hvolpa. Hafði hann í nógu að snúast á heimilinu við umönnun þeirra eins og Fréttablaðið greindi frá í fyrra. Síðan hefur ýmislegt breyst því bæði bolabítarnir og hvolparnir eru horfnir á braut. „Annar bolabíturinn dó og hinn fór á gott heimili. Í millitíðinni skipti ég um parket á allri íbúðinni því það var orðið svo illa farið,“ segir Baldur, sem í framhaldinu eignaðist hina þriggja ára Mjöll sem hann er ákaflega ánægður með. Hún verður reyndar ekki eini hundurinn í sýningunni því staðgengill hennar verður nágrannahundur sjálfs Þjóðleikhússtjórans, Tinnu Gunnlaugsdóttur. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fleiri fréttir Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Walking Dead-leikkona látin Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Gekk hringinn í kringum landið fyrir vannærð börn í Afríku Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Terry Reid látinn Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Sjá meira