Jólatónleikasprengja í ár 5. desember 2009 06:00 Mikil aðsókn á jólatónleika Samúel Kristjánsson er í skýjunum með tvöföldun á aðsókn að Frostrósum. Jólagestir Björgvins fara tvisvar sinnum fram á morgun í fullri Höll og Páll Óskar og Sinfó halda ferna jólatónleika í Háskólabíói. Búast má við að jólatónleikavertíðin velti um 200 milljónum króna.
Fjörtíu þúsund miðar hafa selst inn á hvers kyns jólatónleika í ár. Þeir hafa sjaldan eða aldrei verið fleiri enda veltir þessi „nýi“ iðnaður í tónlistarbransanum í kringum 200 milljónum. Úr mörgu er að moða fyrir þá sem vilja fá jólastemninguna beint í æð. Stórtækasti jólasveinninn hlýtur að vera Samúel Kristjánsson, sem hefur séð um Frostrósartónleikana undanfarin ár. Síðustu árin hafa um tólf þúsund manns að jafnaði mætt samtals á tónleikana, en í ár stefnir í tvöföldun, vel yfir tuttugu þúsund gesti. „Þetta er langt fram úr öllu sem manni hefði mögulega getað dottið í hug,“ segir Samúel. „Það eru átján tónleikar í allt, þar af fernir í Laugardalshöll, sem er í fyrsta skipti sem það gerist. Það eru um fimm þúsund manns að koma á Norðurlandi og svo eru tónleikar í kirkjum og smærri stöðum úti um allt land.“ Samúel segir ástæðuna fyrir þessari miklu aukningu vera blöndu af ýmsu. „Fólk fer ekki til útlanda eins og áður, en hefur hugsanlega ákveðið að leyfa sér þetta í staðinn til að gera vel við sig. Svo hafa Frostrósir vonandi spurst út jafnt og þétt.“ Jólagestir Björgvins verða haldnir í þriðja skipti í Laugardalshöll á morgun. Verið er að selja óseldar pantanir á aukatónleikana. Sex þúsund manns munu njóta. Jólatónleikar Sinfóníunnar eru fastur liðir í jólaundirbúningi margra. Í ár hjálpar Páll Óskar upp á stemninguna og les og syngur ævintýrið um snjókarlinn með tónlist eftir Howard Blake. Nú hefur fjórðu tónleikunum verið bætt við svo búast má við að hátt í fjögur þúsund manns fái jólaandann yfir sig á Hagatorgi. Svo eru allir hinir jólatónleikarnir; kórar, hljómsveitir og söngvarar að syngja og leika úti um allt land og blása fólki jólaandann í brjóst. Þegar allt kemur til alls má því auðveldlega gera ráð fyrir að um fjörutíu þúsund miðar seljist á jólatónleika á Íslandi í ár. Verð miða er afar mismunandi, frá sirka 2.500 kr. upp í 9.990 krónur í dýrustu sætin í Höllinni. Sé miðað við meðalverð má búast við að jólatónleikavertíðin velti tvö hundruð milljónum. Það má finna kreppuna víða, en hún er allavega ekki á tónlistarsviðinu!drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Leikarapar selur í 101 Lífið Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Söngvari YMCA látinn Tónlist Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Fleiri fréttir Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sjá meira