Kynlíf og slagsmál í ævisögu Gylfa Ægis 11. september 2009 05:00 ósérhlífinn Sólmundur segir Gylfa ekki hræddan við að segja sögur af sjálfum sér. „
Með fullri virðingu fyrir öðru fólki, þá held ég að enginn hafi upplifað eins litríka ævi - þó svo að margir hafi gert margt merkilegt. Eða fyndna ævi! Við skulum segja það frekar," segir Sólmundur Hólm, blaðamaður og skemmtikraftur. Sólmundur hefur lokið við handrit að ævisögu Gylfa Ægissonar og skrifaði á miðvikudag undir útgáfusamning við Senu. Bókin kallast Sjúddírarírei og kemur út í byrjun nóvember. Sólmundur segir mikil gæði í sögum Gylfa og að ótrúlegustu menn dúkki upp. „Lélegustu sögurnar hans eru betri en bestu sögurnar úr mínu lífi," segir hann með lotningu. „Það sem einkennir karlinn er að hann er ekkert spéhræddur. Hann segir frá hlutum sem ég myndi aldrei segja frá hefði ég lent í þeim." Spurður hvort ævisaga Gylfa sverji sig í ætt við svokallaðar rokkævisögur, sem einkennast af hinu fornkveðna: „Sex, drugs and Rock n' Roll" segist Sólmundur lofa öllu nema dópinu. „Ég get lofað sexi, miklu víni, spíra og rokk og róli. Þetta er grjóthart, það er verið að berja menn og allt mögulegt." Sena verður áberandi í jólabókaflóðinu í ár, en útgáfan hefur hingað til einbeitt sér að útgáfu tónlistar. Bók um valið á 100 bestu plötum Íslandssögunnar er á teikniborðinu, en sérfræðingar úr ýmsum áttum tóku listann saman í sumar. Blaðamaðurinn Arnar Eggert Thoroddsen og tónlistarsérfræðingurinn Jónatan Garðarsson fjalla um allar plöturnar á listanum og sá síðarnefndi rýnir í niðurstöðurnar. Loks gefur Sena út ævisögu Villa Vill, en Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson sé á síðustu metrunum með að ljúka henni. - afb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira