Árni hjólar í Gylfa Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. október 2009 14:23 Árni Þór Sigurðsson gagnrýnir Gylfa harðlega á bloggi sínu. Mynd/ Valgarður
Framganga Gylfa Arnbjörnssonar í tengslum við endurreisn íslensks efnahags- og atvinnulífs og stöðugleikasáttmálann hlýtur að kalla á spurningar og svör um hvaða umboð hann hefur frá almenningi, segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG. Árni segir á vefdagbók sinni að sér sé minnisstætt að fyrr á þessu ári hafi hann verið á einum af fjölmörgum borgarafundum sem haldnir voru til að mótmæla stöðu þjóðmálanna og krefjast aðgerða af hálfu ríkisvaldsins. Þar hafi Gylfi Arnbjörnsson varla fengið nokkurn frið ti að flytja mál sitt, slík hafi mótmælahrópin að honum verið og öllum hafi verið ljóst að hann nyti lítils trausts og trúnaðar meðal þjóðarinnar. „Engu að síður telur þessi sami forseti ASÍ sig þess umkominn að setja stjórnvöldum skilyrði fyrir aðkomu samtaka launafólks að uppbyggingu íslensks samfélags úr rústum nýfrjálshyggjunnar. Væri það ekki í frásögur færandi ef hann væri að krefjast þess að hagsmunir alls almennings yrðu hafðir að leiðarljósi, að samfélagið yrði byggt upp á samfélagslegum forsendum og lögmálum frjálshyggjunnar, sem hrundi sl. haust, yrði varpað á öskuhauga sögunnar. En því er ekki að heilsa, því miður. Nú er eins og fátt komist að í sálu forsetans en hagsmunir stórfyrirtækja, fjármagnsins, auðvaldsins," segir Gylfi. „Hver valdi Gylfa Arnbjörnsson til að stjórna málefnum þjóðarinnar? Var hann í framboði í nýliðnum þingkosningum? Hversu mörg atkvæði hlaut hann? Framganga hans í tengslum við endurreisn íslensks efnahags- og atvinnulífs og stöðugleikasáttmálann hlýtur að kalla á spurningar og svör af þessum toga," segir Árni Þór. Hann spyr hvort Gylfi vilji frekar meiri niðurskurð almannaþjónustu eða meiri skattahækkanir á launafólk en að atvinnureksturinn, þar með talið orkugeirinn, leggi sittlítið eitt af mörkum til samfélagsþjónustunnar. „Forseti Alþýðusambandsins er einfaldlega umboðslaus þegar hann gengur fram með þeim hætti sem maður verður vitni að þessa dagana. Þjóðin kaus hann ekki til að stjórna málum sínum, og það gerðu reyndar (merkilegt nokk) ekki vinnuveitendur heldur," segir Árni. Hann segir engu líkara en að málið snúist nú aðallega um það hverjir ráði för, ekki hvert stefnt sé. Þegar svo sé komið þurfi menn að fara að hugsa sinn gang.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira