Enski boltinn

Versta byrjun liðs í efstu deild í 79 ár

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sóknarmaðurinn Aruna Dindane í leiknum í dag.
Sóknarmaðurinn Aruna Dindane í leiknum í dag. Nordic Photos / Getty Images

Ekkert lið hefur byrjað jafn illa og Portsmouth í efstu deild enska boltans í 79 ár. Ekki síðan að Manchester United tapaði fyrstu tólf leikjum sínum haustið 1930.

Þetta er aðeins í fjórða sinn frá upphafi að lið tapar fyrstu sjö leikjum sínum á tímabilinu en Portsmouth tapaði í dag fyrir Everton á heimavelli, 1-0.

Portsmouth er þó í fríðum hópi þar sem hin liðin þrjú eru Manchester United, Liverpool og Bolton.

Liverpool tapaði fyrstu átta leikjum sínum í efstu deild haustið 1899 og Bolton fyrstu sjö þremur árum síðar.

Portsmouth er þó eina liðið sem hefur tapað fyrstu sjö leikjum sínum í efstu deild á Englandi eftir að seinni heimsstyrjöldinni lauk.

Everton tapaði fyrstu sex haustið 1958 og Leicester árið 1983.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×