Kostnaður við ESB-þýðingar hleypur á tugum milljóna Magnús Már Guðmundsson skrifar 3. nóvember 2009 09:43 Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Mynd/Anton Brink
Kostnaður ríkissjóðs vegna þýðingar á efni sem tengist mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á hæfi Íslands til að sækja um aðild að ESB hleypur á tugum milljóna króna. Gera má ráð fyrir að um sé að ræða 12 mánaða vinnu fyrir sex þýðendur. Þetta kemur fram í svari Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Spurningar og svör vegna aðildarumsóknar Íslands nema alls 8872 blaðsíðum. Þar af eru spurningar og bein svör við þeim um 2400 blaðsíður en viðaukar eru 6472 blaðsíður, að fram kemur í svari utanríkisráðherra. Þá segir jafnframt að megnið af fylgigögnunum sé til á íslensku en hluti þeirra sé efni sérstaklega samið vegna aðildarumsóknarinnar á ensku. Fljótt á litið gæti þurft að þýða um 500 síður af fylgigögnunum. Ragnheiður spurði meðal annars við kostnað vegna þessara þýðinga og kemur fram í svari Össurar að hann er rúmlega 54 milljónir króna. „Verð á þýðingum á almennum markaði hefur undanfarið reynst vera að jafnaði um 30 kr. á orðið. Samkvæmt því mundi þýðing á umræddu efni á almennum markaði kosta um 54,2 millj. kr. með virðisaukaskatti. Þá er ekki metin til verðs sú vinna sem fælist í yfirferð þýðinganna í ráðuneytum og stofnunum,“ segir í svari utanríkisráðherra.Kostnaður af EES-þýðingum myndi falla niður Þá kemur fram í svari ráðherra að ekki sé gert ráð fyrir fjárstuðningi frá Evrópusambandinu vegna kostnaðar sem til fellur á þessu stigi aðildarferlisins. Hugsanlegt sé að hægt verði að sækja í sjóði sambandsins sem ætlaðir séu til stuðnings og styrkingar stjórnkerfi umsóknarríkja á næstu stigum, til að efla þýðingar á löggjöf Evrópusambandsins. „Komi til aðildar Íslands verður íslenska eitt af opinberum tungumálum Evrópusambandsins og allur þýðingakostnaður færist á Evrópusambandið. Þar með mundi kostnaður íslenskra stjórnvalda af EES-þýðingum einnig falla niður,“ segir að lokum í svarinu.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira