Óttaðist róg og baktal skósveina Óskars 3. nóvember 2009 06:00 Hér sjást Gestur og Óskar þegar prófkjör framsóknarmanna árið 2006 fór fram í Reykjavík. Gestur segir kosningabaráttuna það árið hafa verið svo dýra að ekki væri hægt að ráða starfsmann, þremur og hálfu ári síðar. Fréttablaðið/pjetur
Gestur Guðjónsson, sem meðal annars hefur verið formaður kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Reykjavík og varaformaður umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar, sagði sig frá öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í kjölfar deilu við borgarfulltrúann Óskar Bergsson. Í bréfi sem Gestur sendi borgarstjórnarflokknum fyrir tveimur vikum, og Fréttablaðið hefur undir höndum, segist hann hafa hætt af ótta við róg og baktal skósveina Óskars. Deila Óskars og Gests snerist um það hvort kjördæmasambandið ætti að ráða sér starfsmann fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Það vildi Óskar, en Gestur stóð gegn því og taldi ekki rekstrargrundvöll fyrir slíku, enda væri kjördæmasambandið skuldum hlaðið eftir síðustu borgarstjórnarkosningar. „Ekkert borð er fyrir báru til að fara í slíkar mannaráðningar upp á von og óvon,“ skrifar Gestur. Fleiri mál hafi reyndar komið til sem Óskari hafi eflaust mislíkað, en um þau þurfi að ríkja trúnaður. Gestur segir að í kjölfar þessara deilna hafi Óskar boðað hann á fund og sagst vilja að Gestur hætti formennsku í sambandinu, „hann vilji hafa mann sem hann geti treyst að framkvæmdi hlutina eins og hann vilji, enda kosningavetur framundan“. Þetta segir Gestur hafa komið sér „algjörlega í opna skjöldu, enda hefur Óskar í mörg ár talað um lýðræðið í flokknum og nauðsyn þess að sem flest sjónarmið komist að og gegn klíkuvæðingu sem hefur farið svo illa með okkur framsóknarmenn í Reykjavík í gegnum langan tíma“. Eftir kröfu Óskars um afsögn hafi Gestur einungis átt tveggja kosta völ, „að taka slaginn á kjördæmaþingi og lifa með þeim rógi og baktali sem ég hef orðið að upplifa frá skósveinum Óskars þar sem mér yrði kennt um allt sem aflaga færi í kosningabaráttunni, en þakkandi sér allt sem vel fer, eða að þakka bara fyrir mig og fara og leyfa þeim að eiga sviðið sem það vildu“. Hann hafi því hætt til að valda lágmarksúlfúð í flokknum. Hann hafi ekki viljað leggja á sig vinnu við undirbúning kjördæmaþings, þar sem hann yrði einungis niðurlægður opinberlega. Óskar Bergsson vill lítið tjá sig um málið. „Þetta er bara innanflokksmál hjá okkur sem er enn óleyst og ég er í samskiptum við Gest til að reyna að leysa þennan ágreining,“ segir hann. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir „Tölum svolítið bara um það sem við sjáum á samfélagsmiðlum í bekknum“ Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Sjá meira