Búist við hlaupi í Jökulsá í Fljótsdal 3. nóvember 2009 12:36
Landsvirkjun varar við því að hlaup sé líklegt í Jökulsá í Fljótsdal á næstunni. Hlaupið er þó talið verða lítið og mannvirki ekki sögð í hættu. Á heimasíðu Landsvirkjunar segir að Háöldulón vestan við Eyjabakkajökul hafi fyllst af vatni á undanförnum 2 vikum. Líklegt sé að það leiði til hlaups í ánni á næstunni. Mannvirki Landsvirkjunar á svæðinu eru hönnuð með tilliti til slíks atburðar og eru ekki í hættu, segir Landsvirkjun. Þar segir ennfremur: "Lítil jökulhlaup koma stundum í Jökulsá í Fljótsdal úr Háöldulóni. Það myndast í lægð í krikanum vestan við Eyjabakkajökul. Á leysingatímum rennur nafnlaus jökulkvísl þar um. Jökullinn myndar oft stíflu fyrir lægðina svo að þar myndast uppistöðulón. Þegar Háöldulón nær ákveðinni stærð brýst vatnið undir ísinn og veldur hlaupi. Hlaupvegalengdin undir jökli frá Háöldulóni er um 7 km. Hinn þekkti íshellir í Eyjabakkajökli er farvegur hlaupanna. Mannvirkjum á ekki, eins og að ofan er nefnt, að vera hætta búin og yfirfallið á Ufsarlóni á auðvellega að geta tekið við hlaupvatninu þegar og ef hlaup fer af stað. Lónið er mjög lítið að rúmmáli núna þar sem jökullinn hefur hopað mikið á undanförnum árum. Af þeim sökum er ekki talið að um stórt hlaup verði að ræða. Eyjabakkajökull er skriðjökull sem hlaupið hefur fram með nokkurra áratuga millibili. Síðasta framhlaupið var 1972-1973 þegar brúnin færðist fram um að meðaltali um 2 km. Talið er að fyrri framhlaup hafi orðið 1890, 1931 og 1938. Meðan á framhlaupinu stóð 1972 og fyrstu árin á eftir jókst rennsli Jökulsár í Fljótsdal nokkuð. Óljóst er hvort vatnssöfnunin í Háöldulóni núna sé til merkis um að framhlaup jökulsins sé framundan."
Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Fleiri fréttir Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Sjá meira