Rúmlega helmingur ók yfir hámarkshraða 4. maí 2009 13:42
46 voru staðnir að hraðakstri á Álfhólsvegi í Kópavogi á miðvikudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Þá voru 141 ökumenn staðnir að hraðakstri á Strandvegi í Reykjavík á sama tíma. Á vef lögreglunnar segir að reynslan hafi sýnt að notkun slíks búnaðar gefi gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldi leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á miðvikudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Eins og fyrr sagði voru brot 46 ökumanna mynduð á Álfhólsvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, skammt frá gatnamótum Þverbrekku og Álfaheiðar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því óku 46% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 kílómetrar á klukkustund en þarna er 30 kílómetra hámarkshraði. Fjórir óku á 50 kílómetra hraða á klukkustund eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54. Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Álfhólsvegi og þá óku 36% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna. Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var líka 43 kílómetrar á klukkustund. Svipað hlutfall og í fyrra Brot 141 ökumanns var myndað á Strandvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt, gegnt Gufunesi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 277 ökutæki þessa akstursleið og því óku 51% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 kílómetra hraði á klukkustund en þarna er 50 kílómetra hámarkshraði. Fjörutíu og einn ók á 70 kílómetra hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87. Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á sama stað og þá óku 52% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var meiri umferð um götuna. Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 66 kílómetrar á klukkustund.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Fleiri fréttir Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Sjá meira