Innlent

Ólafur Ragnar hittir ekki Dalai Lama

Ólafur Ragnar verður á Kýpur á meðan Dalai Lama dvelur hér á landi.
Ólafur Ragnar verður á Kýpur á meðan Dalai Lama dvelur hér á landi.

Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta sem hefur verið í útlegð síðustu áratugina á Indlandi, mun heimsækja Ísland í fyrsta skipti í byrjun næsta mánaðar. Forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni gefst þó ekki kostur á að hitta leiðtogann þar sem Ólafur verður staddur á Kýpur ásamt tæplega tvöhundruð íslenskum íþróttamönnum sem taka þátt í smáþjóðaleikunum.

Örnólfur Thorsson, forsetaritari, segir að forsetinn hafi fyrir alllöngu þegið boð Íþróttasambands Íslands, en forsetinn er verndari sambandsins, um að vera viðstaddur smáþjóðaleikana á Kýpur líkt og hann gerði fyrir veimur árum þegar leikarnir voru í Mónakó. Leikarnir hefjast 1. júní næstkomandi en Dalai Lama mun verða með fyrirlestur í Laugardalshöll daginn eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×