15 þúsund vinnustundir á hálendinu 18. febrúar 2009 13:40
Sjálfboðaliðar björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar létu í té rúmlega 15.000 vinnustundir í aðstoð við ferðalanga á hálendinu sl. sumar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem gerð hefur verið um verkefnið Björgunarsveitir á hálendinu. „Undanfarin ár hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg unnið markvisst að því að bæta öryggi ferðalanga á hálendi Íslands en þar hafa árlega orðið alvarleg slys og mannslát," segir í tilkynningu frá Landsbjörgu. „Ferðamannastraumur á hálendinu hefur aukist mikið og vekur athygli hversu margir eru á vanbúnum bílum og almennt illa búnir til hálendisferða. Sumarið 2006 ákvað félagið að efla slysavarnir á hálendinu og virkja til þess sjálfboðaliða björgunarsveita og slysavarnadeilda. Farið var af stað með verkefnið Björgunarsveitir á hálendinu sem felst í því að í sjö vikur á hverju sumri eru fjórar björgunarsveitir staðsettar á hálendinu, ferðafólki til leiðbeiningar og aðstoðar ef eitthvað kemur upp á." Bent er á að þrátt fyrir að verkefnið Björgunarsveitir á hálendinu sé eingöngu mannað sjálfboðaliðum er það afar kostnaðarsamt og leggst megnið af þeim kostnaði á björgunarsveitirnar og Slysavarnafélagið Landsbjörg. „N1, Vodafone og Íslenska gámafélagið styrktu þó verkefnið með ýmsum hætti og kann félagið þeim bestu þakkir fyrir." „Síðastliðið sumar tóku 20 björgunarsveitir þátt en 133 einstaklingar sinntu upplýsingagjöf og aðstoð við ferðafólk fyrir þeirra hönd. Gríðarlega margar vinnustundir liggja að baki verkefni þessu en reiknaðar vinnustundir eru rúmlega 15.000 talsins. Í þessum tölum er þó bara tekið vinnuframlag þeirra sem voru á hálendinu en að auki liggja ófáar vinnustundir að baki við undirbúning, námskeiðshald og fleira. Eknir kílómetrar björgunarsveitanna í verkefninu voru 52.471," segir einnig. Í skýrslunni kemur fram að skráðar aðstoðarbeiðnir til björgunarsveita voru 349 og hefur þeim fjölgað nokkuð mili ára. „Nokkuð vantar þó upp á að leiðbeiningar og upplýsingar til ferðamanna séu skráðar, en forvarnir með þeim hætti má koma í veg fyrir mörg óhöpp og slys sem annars gætu orðið vegna vanþekkingar á aðstæðum. Þarna eru sveitir að gefa upplýsingar um aðstæður, færð, veður og útbúnað. Fyrir utan fræðslu og leiðbeiningar voru helstu verkefni að veita slösuðum og veikum fyrstu hjálp, draga upp bíla upp úr ám, leiðbeina með akstur yfir ár, ferja gangandi vegfarendur yfir ár, viðgerðir á bílum, sinna útköllum er berast frá Neyðarlínunni, afskipti af utanvegaakstri og aðstoð með eldsneyti á bíla. Einnig liðsinntu þær skála- og landvörðum með ýmis tilfallandi verkefni."
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira